Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur
Undirritunardagur
30. nóvember 2022
Útgáfudagur
30. nóvember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 111/2022
30. nóvember 2022
LÖG
um breytingu á lögum um veiðigjald, nr. 145/2018 (framkvæmd fyrninga).
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
1. gr.
Í stað 4. málsl. 2. mgr. 5. gr. laganna koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Til fasts kostnaðar við fiskveiðar teljast skattalegar fyrningar skipa og skipsbúnaðar. Séu skattalegar fyrningar samtals hærri en 20% af fyrningargrunni að viðbættum 200 millj. kr. skal ríkisskattstjóri dreifa því sem umfram er á næstu fimm ár. Áætluð vaxtagjöld skulu nema sömu fjárhæð og þær fyrningar sem lagðar eru til grundvallar útreikningi á veiðigjaldi á ári hverju.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 30. nóvember 2022.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Svandís Svavarsdóttir.
A deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022