Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

5. október 2023

Útgáfudagur

12. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1354/2023

5. október 2023

GJALDSKRÁ

vegna skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa í Ísafjarðarbæ.

1. gr. Meginreglur.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsingu og kynninga vegna málsins. Umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald, vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 22.970 kr. eða gjald skv. reikningi.

2. gr. Skilgreiningar.

Afgreiðslugjald: gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi og vegna skipulagsbreytinga. Í gjaldinu felst kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu og yfirferð erindisins.

Umsýslu- og auglýsingakostnaður: kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingu auglýsinga og aðra umsýslu.

Breytingarkostnaður: kostnaður sem fellur til innan sveitarfélagsins við gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á gildandi aðal- eða deiliskipulagsuppdráttum.

3. gr. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga.

Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, viðmiðunargjald 405.800 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 143.800 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 129.400 kr.
Afgreiðslugjald vegna aðalskipulagsbreytinga 7.500 kr.

4. gr. Kostnaður vegna deiliskipulags.

Nýtt deiliskipulag.
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 405.800 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 143.800 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulags 7.500 kr.
Verulegar breytingar á deiliskipulagi.
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 260.900 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 143.800 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulagsbreytinga 7.500 kr.
Óverulegar breytingar á deiliskipulagi.
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 173.900 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 101.400 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulagsbreytinga 7.500 kr.

5. gr. Kostnaður vegna grenndarkynningar.

Grenndarkynning 50.700 kr.

6. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.

Afgreiðslugjald 101.400 kr.
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald 188.400 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald 101.400 kr.
Framkvæmdaleyfi – minniháttar framkvæmdir 31.800 kr.
Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 36.200 kr.
Tímagjald, eftirlit umfram það sem er innifalið í framkvæmdaleyfisgjaldi 17.500 kr.

7. gr. Gjalddagi.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari falla í gjalddaga við afgreiðslu erindis nema um annað sé samið.

8. gr. Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð.

Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð þar sem við getur átt og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar.

Leyfisgjöld eru ekki endurkræf þó leyfi falli úr gildi.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi þann 1. janúar 2024.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá vegna skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa í Ísafjarðarbæ nr. 1344/2022.

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 5. október 2023.

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 12. desember 2023

Tengd mál