Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. desember 2020
Útgáfudagur
21. desember 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1297/2020
7. desember 2020
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Á undan orðunum „framkvæmda- og tæknisvið“ í 4. málslið 1. mgr. 8. gr. reglnanna bætist við orðið: alþjóðasvið.
2. gr.
Í stað ártalanna „2018-2019, 2019-2020 og 2020-2021“ í ákvæði til bráðabirgða aftast í 47. gr. reglnanna kemur: 2021-2022, 2022-2023 og 2023-2024.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. desember 2020.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2020