Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
26. maí 2026
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 644/2026
26. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarkaupstaðar vegna breytinga á heimildum Flensborgarhafnar.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 26. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. mars 2026.
Í breytingunni felst að skilmálum fyrir landnotkunarreit Flensborgarhafnar, M5, er breytt. Dregið er úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum, hámarkshæð breytt úr 3 hæðum í 3 hæðir og ris, ákvæði um að sjónlínur skuli reynt að tryggja eftir fremsta megni og ákvæði um inndregnar efstu hæðir fellt út.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 26. maí 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026