Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalabyggð

Málaflokkur

Vatnamál, Dalasýsla

Undirritunardagur

12. desember 2019

Útgáfudagur

13. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1373/2019

12. desember 2019

GJALDSKRÁ

fyrir Vatnsveitu Dalabyggðar.

1. gr.

Vatnsgjald Vatnsveitu Dalabyggðar er 0,29% af fasteignamati fyrir íbúðarhúsnæði og annað húsnæði sem tengt er vatnsveitunni. Vatnsgjald á íbúðarhús skal þó að hámarki vera kr. 55.427.

2. gr.

Aukavatnsgjald skv. 10. gr. reglugerðar fyrir vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005, skal vera 15,90 krónur á hvern mældan eða áætlaðan rúmmetra vatns.

3. gr.

Leigugjald vatnsmæla, sbr. 11. gr. ofangreindrar reglugerðar, fer eftir sverleika heimæðar. Leigugjald skal greiða árlega og vera sem hér segir:

Sverleiki í mm kr.
< 50 4.771
50-100 11.580
> 100 23.856

Vatnsnotandi skal greiða kostnað við uppsetningu á mæli samkvæmt reikningi.

4. gr.

Heimæðagjald skal taka mið af gerð stærð og lengd heimæðar. Miðað er við að ídráttarrör hafi verið lagt á frostfríu dýpi frá lóðarmörkum að inntaksstað mannvirkisins og frágangur hafi verið samþykktur af tæknideild Dalabyggðar.

Þvermál inntaks 32 mm 40 mm 50 mm 63 mm 75 mm 90 mm
Fastagjald kr. 56.799 73,839 90.879 107.919 124.959 141.998
Gjald á metra í kr. 1.136 1.363 1.590 1.818 2.045 2.272

Heimæðargjald fyrir inntök stærri en 90 mm verður reiknað sérstaklega af tæknideild Dalabyggðar.

Aukakostnaður: Vanti ídráttarrör eða ef ídráttarrör reynist ónothæft greiðist 2.938 kr./m vegna skurðgraftar og ídráttarrörs. Heimæðagjald breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu. Ofangreint verð tekur mið af vísitölu byggingarkostnaðar sem tók gildi 1. desember 2019 og var 146,4 stig.

5. gr.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðagjalds. Vatnsgjald og heimæðagjald, ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, nýtur lögveðsréttar í viðkomandi fasteign næstu tvö árin eftir gjalddaga og eru aðfararhæf samkvæmt 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989.

6. gr.

Gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar er samin á grundvelli laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005, með síðari breytingum og tekur þegar gildi. Samhliða fellur úr gildi fyrri gjaldskrá nr. 1304/2018.

Gjaldskráin var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 12. desember 2019.

Búðardal, 12. desember 2019.

Kristján Sturluson sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2020

Tengd mál