Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjavíkurborg

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

20. mars 2026

Útgáfudagur

8. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 337/2026

20. mars 2026

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Vogabyggð 1 – Stefnisvogur 1 – USK25100467.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 27. janúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar, svæðis 1, vegna lóðarinnar nr. 1 við Stefnisvog. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgar, byggingarmagn neðanjarðar eykst, bílastæðum fjölgar, innkeyrslum fjölgar og bætt er við skábraut á borgarlandi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Úlfarsárdalur – Iðunnarbrunnur 13 – USK25110257.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 17. febrúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 13 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni felst að heimilt verði að nýta kjallara undir húsinu með tilsvarandi auknu byggingarmagni. Húsið verður áfram tvíbýlishús eins og heimilt er samkvæmt gildandi deiliskipulagi, en kjallarinn verður að hluta til séreign íbúðar jarðhæðar og að hluta til séreignageymslur beggja íbúða hússins. Við breytinguna eykst byggingarmagn lóðar og nýtingarhlutfall hækkar. Fallið er frá kröfu um að inngangur að efri hæð verði um forstofu á neðri hæð og um innanhússstiga og heimilt verður að inngangur að efri hæð verði um opna yfirbyggða tröppu utanhúss. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Vatnagarðar – ný lóð fyrir dreifistöð rafmagns – USK25070237.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 24. febrúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna óbyggðrar lóðar norðan Vatnagarða 38. Í breytingunni felst að afmörkuð er ný lóð með staðfangið Vatnagarðar 38A fyrir dreifistöð rafmagns sem m.a. annar þörfum hraðhleðslustöðva við Holtagarða. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Fossaleynismýri – breyting á deiliskipulagi – Fossaleynir 17 – USK25120213.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, 25. febrúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Fossaleynismýrar vegna lóðarinnar nr. 17 við Fossaleyni. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar til norðurs um 2.414 m² og verður lóð eftir breytingu 6.193 m². Núverandi bráðabirgðahúsnæði á lóð verður fjarlægt en grunnflötur aðalbyggingar stækkar lítillega og byggð lagna- og tæknihæð ofan á hluta hússins. Byggingarreitir fyrir hjólageymslu og sorpskýli eru skilgreindir á uppdrætti. Nýtingarhlutfall eftir breytingar verður 0,29. Innkeyrslum á lóðina verður fjölgað úr einni í tvær en bílastæðum fækkar um tvö á lóðinni. Heimilt verður að reisa 3 m háa girðingu á lóðamörkum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 20. mars 2026.

Brynjar Þór Jónasson.

B deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026

Tengd mál