Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

19. desember 2019

Útgáfudagur

23. desember 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1226/2019

19. desember 2019

AUGLÝSING

um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2020.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum, nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög, nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2020 verður 20,6% af tekjuskattsstofni að 4.042.995 kr., 22,75% af tekjuskattsstofni frá 4.042.996 kr. að 11.350.472 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 11.350.473 kr. Meðalútsvar á árinu 2020 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2020 verður því 35,04% af tekjuskattsstofni að 4.042.995 kr., 37,19% af tekjuskattsstofni frá 4.042.996 kr. að 11.350.472 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 11.350.473 kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða LXI, laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2020 vera 655.538 krónur, eða 54.628 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. desember 2019.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. desember 2019

Tengd mál