Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

19. desember 2023

Útgáfudagur

27. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1525/2023

19. desember 2023

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Tilkynningaskyldir aðilar, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu innan mánaðar frá lokum reikningsárs á árinu 2024 tilkynna ríkisskattstjóra hvaða félag í samstæðunni skili ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða staðgöngufélag móðurfélags.

Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á netfangið milliverdlagning@skatturinn.is.

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið .

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 19. desember 2023.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023

Tengd mál