Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál, Samgöngumál
Undirritunardagur
22. mars 2018
Útgáfudagur
28. mars 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 333/2018
22. mars 2018
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 694/2010 um almannaflug flugvéla.
1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til alls almannaflugs með íslenskum og erlendum flugvélum sem fljúga um íslenska lofthelgi, sem ekki falla undir kröfur reglugerðar (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu. Reglugerðin tekur einnig til almannaflugs íslenskra flugvéla í millilandaflugi, sem ekki falla undir kröfur reglugerðar (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nema öðruvísi sé fyrir mælt í lögum, reglugerðum, og/eða verklagsreglum þeirra ríkja þar sem starfræksla fer fram.
2. gr.
Á eftir orðinu, „Flugstjóri" í lið 1.4 í I. viðauka við reglugerðina bætist við:
eða aðrir sem tilkynningarskylda hvílir á
3. gr.
Liður 4.12 Neyðarsendir í I. viðauka við reglugerðina, orðast svo:
4.12 Neyðarsendir.
a) Flugvélar skulu búnar eftirfarandi:
1)
neyðarsendi
(ELT)
af
hvaða
gerð
sem
er,
með
sérstakt
lofthæfivottorð
sem
gefið
var
út
í
fyrsta
sinn
1.
júlí
2008,
eða
fyrr,
2)
sjálfvirkum
neyðarsendi,
ef
sérstakt
lofthæfivottorð
var
gefið
út
í
fyrsta
sinn
eftir
1.
júlí
2008,
eða
3)
neyðarsendi
fyrir
þá
sem
komast
af
(ELT(S))
eða
neyðarsendi
fyrir
einstaklinga
(PLB),
sem
flugverji
ber
eða
farþegi,
ef
flugvélin
hefur
skráðan
hámarksfjölda
í
sætafyrirkomulagi
fyrir
sex
eða
færri.
b) Neyðarsendar af hvaða gerð sem er og neyðarsendar fyrir einstaklinga (PLB) skulu geta sent út samtímis á 121,5 MHz og 406 MHz tíðni.
4. gr.
Liður 6.1 Gildissvið, í I. viðauka við reglugerðina, fellur brott.
5. gr.
Liður 6.2 a) 4. í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig að orðið „samþykkta" fellur brott.
Liður 6.2 e) í I. viðauka við reglugerðina fellur brott.
6. gr.
Liður 6.3 b) í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
b) lagfæra samkvæmt viðhaldsgögnum, hvers kyns bilanir og skemmdir sem hafa áhrif á öryggi í starfrækslu. Fyrir öll stór loftför skal hafa hliðsjón af listanum yfir lágmarksbúnað og listanum yfir leyfð frávik í ytri búnaði loftfars fyrir flug, ef við á, fyrir viðkomandi tegund flugvélar.
Liður 6.3 c) í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig að orðið „samþykkta" fellur brott.
7. gr.
Liður 6.4 Viðhaldsáætlun í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
6.4 Viðhaldsáætlun.
a) Skipuleggja skal viðhald flugvélar í samræmi við viðhaldsáætlun hennar.
b) Viðhaldsáætlunin og síðari breytingar á henni skulu hljóta samþykki Samgöngustofu, nema skilyrði d) liðar séu uppfyllt.
c) Viðhaldsáætlun flugvélar skal uppfylla kröfur um viðhaldsáætlun sem á við þá tilteknu flugvél, eins og kveðið er á um í Evrópureglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, ásamt síðari breytingum.
d) Að því er varðar flugvélar með hámarksflugtaksmassa (MTOM) sem er 2.000 kg eða minni og flokkast ekki sem flókið loftfar og sviffluga eða vélsviffluga með hámarksflugtaksmassa sem er 2.000 kg eða minni, er heimilt að útbúa viðhaldsáætlun með undirritaðri yfirlýsingu. Með slíkri yfirlýsingu lýsir eigandinn því yfir að um sé að ræða viðhaldsáætlun fyrir tiltekna skrásetningu loftfars og að hann beri fulla ábyrgð á innihaldi áætlunarinnar, einkum hvers konar frávikum sem innleidd eru með hliðsjón af tilmælum handhafa samþykkis fyrir hönnun viðgerðar. Skal viðhaldsáætlunin uppfylla kröfur um viðhaldsáætlun sem á við þá tilteknu flugvél, eins og kveðið er á um í Evrópureglugerð um viðvarandi lofthæfi loftfara og flugtæknilegra framleiðsluvara, hluta og búnaðar og um samþykki fyrir viðhaldsstöðvum og starfsfólki á þessu sviði, ásamt síðari breytingum. Samgöngustofa skal útfæra sniðmát til að uppfylla þetta ákvæði.
e) Umráðandi flugvélar skal endurskoða viðhaldsáætlun árlega hið minnsta.
8. gr.
Við lið 6.6 í I. viðauka við reglugerðina bætist eftirfarandi málsgrein:
Samgöngustofa sker úr í vafaatriðum.
9. gr.
1. mgr. e) liðar 6.7 í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
Auk opinbers viðhaldsvottorðs, skal færa eftirfarandi upplýsingar, sem eiga við um alla ísetta íhluti (hreyfil, loftskrúfu, hreyfilhluta eða íhlut með tiltekinn endingartíma), inn í viðeigandi viðhaldsskrár hreyfils eða loftskrúfu eða í spjaldskrá hreyfilhluta eða íhluta með tiltekinn endingartíma:
2. töluliður e) liðar 6.7 orðast svo:
2) tegund, raðnúmer og skráningarmerki flugvélar, hreyfilsins, loftskrúfunnar, hreyfilhlutans, eða íhlutarins með tiltekinn endingartíma sem tiltekinn íhlutur sem settur er í hefur, ásamt tilvísun í ísetningu og úrtöku íhlutarins og
3. töluliður e) liðar 6.7 orðast svo:
3) dagsetning ásamt uppsöfnuðum heildarflugtíma og/eða notkunarskiptum í flugi og/eða lendingum og/eða almanaksdögum tiltekins íhlutar, eftir því sem við á, og
10. gr.
h) liður 6.7 í I. viðauka við reglugerðina orðast svo:
h) Rekstraraðili flugvélar skal sjá um að komið sé upp kerfi þar sem eftirfarandi er skráð og geymt svo lengi sem hér segir:
1.
allar
sundurliðaðar
viðhaldsskrár
yfir
loftfarið
og
íhluti
með
tiltekinn
endingartíma
sem
settir
eru
í
það,
þar
til
nýjar
upplýsingar,
sem
eru
sambærilegar
að
því
er
varðar
umfang
og
nákvæmni,
hafa
komið
í
stað
upplýsinganna
sem
þar
er
að
finna
en
eigi
skemur
en
í
36
mánuði
eftir
að
viðhaldsvottorð
hefur
verið
gefið
út
fyrir
loftfarið
eða
íhlutinn
og
2.
heildartími
notkunar
loftfarsins
og
allra
íhluta
með
tiltekinn
endingartíma
(klukkustundir,
almanaksdagar,
notkunarskipti
og
lendingar),
í
a.m.k.
12
mánuði
eftir
að
loftfarið
eða
íhluturinn
er
endanlega
tekinn
úr
umferð
og
3.
notkunartími
(klukkustundir,
almanaksdagar,
notkunarskipti
og
lendingar)
eftir
því
sem
við
á,
frá
síðasta
reglubundna
viðhaldi
íhlutar
með
tiltekinn
endingartíma,
a.m.k.
þar
til
farið
hefur
fram
nýtt
áætlað
viðhald
á
íhlutnum
jafn
umfangsmikið
og
nákvæmt
og
hið
fyrra
og
4.
gildandi
staða
samræmis
við
viðhaldsáætlun
þannig
að
staðfesting
fáist
á
því
að
samþykktri
viðhaldsáætlun
loftfara
hafi
verið
framfylgt,
a.m.k.
þar
til
farið
hefur
fram
nýtt
reglubundið
viðhald
á
loftfarinu
eða
íhlutnum,
jafn
umfangsmikið
og
nákvæmt
og
hið
fyrra
og
5.
gildandi
staða
lofthæfifyrirmæla
er
varða
loftfarið
og
íhlutina,
í
a.m.k.
12
mánuði
eftir
að
loftfarið
eða
íhluturinn
er
endanlega
tekinn
úr
umferð
og
6.
ítarleg
lýsing
á
nýjustu
breytingum
og
viðgerðum
sem
hafa
farið
fram
á
loftfari,
hreyflum,
loftskrúfum
og
öllum
öðrum
íhlutum
sem
eru
nauðsynlegir
vegna
flugöryggis,
í
a.m.k.
12
mánuði
eftir
að
þeir
eru
endanlega
teknir
úr
umferð.
11. gr.
Liður 6.8 b) í I. viðauka við reglugerðina fellur brott.
12. gr.
Liður 6.10 í I. viðauka við reglugerðina breytist þannig:
Við a) lið bætist eftirfarandi málsgrein:
Enn fremur skal fara fram sérstök skoðun að loknum öllum viðhaldsverkefnum sem tengjast flugöryggi nema annað sé tekið fram eða samþykkt af Samgöngustofu.
Á eftir d) lið bætast við eftirfarandi liðir:
e) Ef um er að ræða slæmt veður eða langvarandi viðhald skal nota viðeigandi aðstöðu.
f) Framkvæma skal allt viðhald innan takmarkana sem varða umhverfið og eru tilgreindar í viðhaldsgögnunum í grein 6.9.
13. gr.
Við lið 6.11 í I. viðauka við reglugerðina bætast eftirfarandi liðir, auk þess sem bókstafurinn a) bætist framan við gildandi málsgrein:
b) Einungis viðurkenndir viðhaldsvottar geta ákvarðað, á grundvelli viðhaldsgagna samkvæmt grein 6.9, hvort bilun í loftfari stofni flugöryggi í hættu og þar með ákvarðað hvaða lagfæringar skuli gera fyrir frekara flug og hvenær og hvaða lagfæringum megi slá á frest. Þó gildir þetta ekki þegar:
1)
flugmaðurinn
notar
listann
yfir
lágmarksbúnað
sem
Samgöngustofa
hefur
gefið
fyrirmæli
um
eða
2)
Samgöngustofa
skilgreinir
bilanir
í
loftfarinu
sem
þolanlegar.
c) Lagfæra skal allar bilanir í loftfari, sem stofna ekki flugöryggi í hættu, eins fljótt og gerlegt er eftir að bilunarinnar í loftfarinu verður fyrst vart og innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í viðhaldsgögnunum.
d) Allar bilanir, sem eru ekki lagfærðar fyrir flug, skal skrá í viðhaldsskrár loftfara samkvæmt grein 6.7 eða tækniflugbók eftir því sem við á.
14. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2018.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 28. mars 2018