Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Lögreglumál, Landamæri

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

11. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 671/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um samvirkni upplýsingakerfa Evrópusambandsins á sviði landamæra, vegabréfsáritana, lögreglu- og dómsmálasamstarfs, verndarmála og fólksflutninga, nr. 1057/2025.

1. gr.

Á eftir orðunum „að undanskildum“ í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: V. kafla og.

2. gr.

1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnnar orðast svo:

Ríkislögreglustjóri, sem ábyrgðaraðili að rekstri íslenska hluta komu- og brottfararkerfis, ferðaupplýsinga- og ferðaheimildakerfis, Schengen-upplýsingakerfis og evrópsks fingrafaragrunns, skal halda aðgerðaskrá yfir leitarfyrirspurnir innlendra stjórnvalda í evrópsku leitargáttinni, sameiginlega lífkennamátunarkerfinu og sameiginlega auðkennasafninu sem gerðar eru í viðkomandi kerfum, sbr. 2. mgr. 10. gr., 2. mgr. 16. gr. og 5. mgr. 24. gr. reglugerða (ESB) 2019/817 og (ESB) 2019/818. Utanríkisráðuneytið sem ábyrgðaraðili að rekstri íslenska hluta upplýsingakerfis um vegabréfsáritanir (N-VIS) skal halda aðgerðaskrá yfir leitarfyrirspurnir innlendra stjórnvalda í evrópsku leitargáttinni, sameiginlega lífkennamátunarkerfinu og sameiginlega auðkennasafninu sem gerðar eru í N-VIS.

3. gr.

Á eftir 4. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 4. gr. a., ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Aðgangur lögreglu að sameiginlega auðkennasafninu.

Lögreglu er heimilt, í þeim tilgangi einum að staðfesta auðkenni einstaklings, að framkvæma leitarfyrirspurn í sameiginlega auðkennasafninu, enda sé uppfyllt eitt af eftirfarandi skilyrðum:

  1. lögregla getur ekki staðfest deili á einstaklingi vegna skorts á ferðaskilríkjum eða öðru trúverðugu skjali eða skilríkjum sem sanna hver viðkomandi er,
  2. efasemdir eru um auðkennisupplýsingar sem einstaklingurinn leggur fram,
  3. efasemdir eru um hvort ferðaskilríkin eða annað trúverðugt skjal eða skilríki, sem einstaklingur­inn leggur fram, séu ósvikin,
  4. efasemdir eru um hver handhafi ferðaskilríkjanna eða annars trúverðugs skjals eða skilríkja er eða
  5. einstaklingur neitar eða er ófær um samvinnu.

Framkvæmd leitarfyrirspurna er aðeins heimil gagnvart börnum undir 12 ára aldri brjóti það ekki í bága við hagsmuni barnsins.

Lögreglu er aðeins heimilt að framkvæma leitarfyrirspurn skv. 1. mgr. á grundvelli lífkennaupplýsinga einstaklings, sem teknar hafa verið beint við auðkenniseftirlit, í löggæslutilgangi eða vegna máls á grundvelli laga um útlendinga og að því tilskildu að ferlið hafi verið hafið í viðurvist viðkomandi einstaklings. Ef ekki er hægt að nota lífkennaupplýsingar einstaklings eða ef leitarfyrirspurn með þeim upplýsingum ber ekki árangur er lögreglu heimilt að framkvæma leitarfyrirspurn á grundvelli auðkennisupplýsinga einstaklingsins ásamt ferðaskilríkjaupplýsingum eða á grundvelli auðkennisupplýsinga sem sá einstaklingur leggur fram.

Lögreglu er enn fremur heimilt að framkvæma leitarfyrirspurn í sameiginlega auðkennasafninu með lífkennagögnum í kjölfar náttúruhamfara, slyss eða hryðjuverkaárásar og einungis í þeim tilgangi að staðfesta deili á óþekktum einstaklingum sem eru ófærir um að sanna á sér deili eða bera kennsl á óþekktar líkamsleifar.

4. gr.

2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Í stað fylgiskjala 1 og 2 við reglugerðina koma ný fylgiskjöl 1 og 2, reglugerð (ESB) 2019/817 og reglugerð (ESB) 2019/818, með áorðnum breytingum, sem birt eru með reglugerð þessari.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæði k-liðar 1. mgr. 23. gr. laga um landamæri, nr. 136/2022 og öðlast hún þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026

Tengd mál