Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing eystra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
9. desember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1358/2025
9. desember 2025
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi eystra.
Austurvegur á Hvolsvelli, breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti 13. nóvember 2025 breytingu á deiliskipulagi við Austurveg í gegnum Hvolsvöll. Deiliskipulagið tekur til lóða við Austurveg 1-3. Með breytingunni er verið að sameina fjórar lóðir, auka byggingarmagn við Austurveg 1 og gera ráð fyrir hleðslugarði fyrir stærri ökutæki. Samhliða eru gerðar minniháttar breytingar á hótelreit við Lyngmóa 5. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hvolsvelli, 9. desember 2025.
F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra,
Þóra Björg Ragnarsdóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025