Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Hornafjörður
Málaflokkur
Sorphreinsun, Sveitarfélagið Hornafjörður
Undirritunardagur
12. janúar 2024
Útgáfudagur
18. janúar 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 25/2024
12. janúar 2024
GJALDSKRÁ
fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
1. gr. Almennt.
Sveitarfélagið Hornafjörður innheimtir gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs í samræmi við 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 236/2018.
2. gr. Um móttökugjöld íbúa.
Íbúar greiða móttökugjöld á söfnunarstöð sveitarfélagsins eftir rúmmáli (kr./m³) og úrgangstegund farms skv. 4. gr. Starfsmaður söfnunarstöðvar metur í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskrá, að fenginni lýsingu úrgangshafa og miðað við umfang farms.
Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.
Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.
3. gr. Um móttökugjöld fyrirtækja.
Fyrirtæki greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr./kg) skv. 4. gr. og skulu slíkir farmar vigtaðir á hafnarvog sveitarfélagsins á opnunartíma hennar. Nauðsynlegt er að sýna vigtarnótu eða staðfestingu á vigtun til að komast inn á söfnunarstöðina á Höfn með slíka farma.
Í ákveðnum tilfellum skal fyrirtæki tómvigta ökutæki á hafnarvog eftir farmlosun á söfnunarstöð. Sé þeirri skyldu ekki sinnt skal innheimta lágmarksgjald sem jafngildir 200 kg af blönduðum/grófum úrgangi eða 13.800 kr.
Heimilt er að hafna frekari förmum frá slíkum ökutækjum þar til tómvigtun hefur farið fram.
Fyrir vigtun eru greidd vogargjöld skv. gjaldskrá Hornafjarðarhafnar.
Ólíkum úrgangstegundum skal haldið aðskildum og skilað í viðeigandi flokka á söfnunarstöð.
4. gr. Móttökugjöld á söfnunarstöð.
Gjöld vegna móttöku úrgangs á söfnunarstöð* eru eftirfarandi:
| Flokkur 1. | Kr./kg | Kr./m³ |
| Blandað efni eða efni með mikinn förgunarkostnað** | ||
| Blandaður/grófur úrgangur: | 69 | 138 |
| Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangstegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang. | ||
| Plast án úrvinnslugjalds: | 69 | 138 |
| Harðplast, plaströr, fiskikör og annað sambærilegt plast. | ||
| Litað timbur: | 52 | 104 |
| Litað, málað, fúavarið, plasthúðað eða blandað. | ||
| Flokkur 2. | ||
| Flokkað efni** | ||
| Hreint timbur: | 29 | 115 |
| Ekki litað, málað eða fúavarið. | ||
| Gifs og gifsplötur. | 29 | 115 |
| Matarafgangar í moltugerð: | 29 | 115 |
| Lífúrgangur frá heimilum eða rekstraraðilum. | ||
| Hreint steinefni frá framkvæmdum: | 29 | 115 |
| Steypubrot, postulín, flísar, keramik, gler og uppmokstur. | ||
| Flokkur 3. | ||
| Hreint endurvinnanlegt efni** | ||
| Plastumbúðir | 0 | 0 |
| Pappír, sléttur pappi, dagblöð og tímarit | 0 | 0 |
| Bylgjupappi | 0 | 0 |
| Frauðplast | 0 | 0 |
| Heyrúlluplast og stórsekkir - hreint | 0 | 0 |
| Málmumbúðir/brotajárn | 0 | 0 |
| Glerumbúðir, s.s. flöskur og krukkur | 0 | 0 |
| Garðaúrgangur án aðskotahluta | 0 | 0 |
| Endurnýtanlegir hlutir í nytjagám | 0 | 0 |
| Hjólbarðar | 0 | 0 |
| Raftæki | 0 | 0 |
| Rafhlöður og rafgeymar*** | 0 | 0 |
| Málning og spilliefni*** | 0 | 0 |
*
Ekki
er
tekið
við
kjöt-
og
sláturúrgangi,
seyru
og
fitu,
sóttmenguðum
úrgangi,
brotajárni
sem
inniheldur
spilliefni
eða
veiðarfærum
á
söfnunarstöð.
**
Farmar
eiga
að
koma
flokkaðir
á
söfnunarstöð.
Fyrir
óflokkaða
farma
eða
endurvinnanlega
farma
sem
innihalda
óhreint
efni
er
heimilt
að
innheimta
tímagjald
við
flokkun
og
frágang
að
fjárhæð
10.350
kr./klst.
***
Fyrir
rafhlöður
eða
rafgeyma
og
spilliefna
án
úrvinnslugjalds
er
heimilt
að
innheimta
gjöld
fyrir
útlögðum
förgunarkostnaði.
5. gr. Móttökugjöld á urðunarstað.
Fyrir farma á urðunarstað skulu eftirfarandi gjöld greidd fyrir hvert kíló skv. vigt á hafnarvog sveitarfélagsins:
| Úrgangstegund | Kr./kg |
| Blandaður/grófur úrgangur: | 52 |
| Úrgangur sem ekki á sér farveg til endurvinnslu eða blanda tveggja eða fleiri ólíkra úrgangstegunda s.s. grófur úrgangur frá framkvæmdum, ónýt húsgögn eða heimilisúrgangur. Má ekki innihalda endurvinnanlegan úrgang. | |
| Kjöt- og sláturúrgangur | 35 |
| Seyra og fita | 35 |
| Matarleifar í moltugerð | 23 |
Aðeins fyrirtækjum sem hafa heimild sveitarfélagsins og eru með starfsleyfi til að flytja úrgang er heimilt að koma með úrgang beint á urðunarstaðinn í Lóni. Öll losun skal fara fram í samráði við rekstraraðila urðunarstaðar.
Innihaldi farmar losunaraðila annan úrgang en þann sem heimilt er að losa á urðunarstaðinn, eða úrgang sem væri hæfur til endurvinnslu, getur sveitarfélagið dregið til baka heimild til farmlosunar á urðunarstað.
6. gr. Aðfararheimild.
Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með aðför, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
7. gr. Lagaheimild og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 202/2023.
Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 11. janúar 2024.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2024