Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfisráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Kópavogur, Garðabær

Undirritunardagur

1. október 2008

Útgáfudagur

16. október 2008

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 958/2008

1. október 2008

SAMÞYKKT

um hesthúsahverfi á Kjóavöllum í landi Kópavogs og Garðabæjar.

1. gr.

Heilbrigðissamþykkt þessi gildir um hesthúsahverfi á Kjóavöllum í Kópavogi og Garðabæ, samkvæmt samþykktu deiliskipulagi, sbr. auglýsingu nr. 769/2008 í B-deild Stjórnartíðinda.

2. gr.

Markmið samþykktarinnar er að tryggja góða umgengni og fullnægjandi mengunarvarnir. Þeir sem stunda hestamennsku á svæðinu, eiga leið um það eða koma til með að búa eða starfa í næsta nágrenni við það skulu ekki verða fyrir óþægindum eða óhollustu. Draga skal úr eða koma í veg fyrir óæskileg áhrif á yfirborðsvatn og grunnvatn vegna athafna og umsvifa við hestahaldið.

3. gr.

Hesthús og mannvirki, sem þeim tilheyra, skulu byggð og þeim viðhaldið í samræmi við skilmála gildandi deiliskipulags. Hönnun, frágangur húsa og búnaðar og öll umhirða skal vera í samræmi við reglugerðir nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns og nr. 797/1999 um varnir gegn mengun grunnvatns.

4. gr.

Notkun húsa skal vera í samræmi við samþykkt deiliskipulag sbr. auglýsingu nr. 769/2008. Önnur notkun húsa í hverfinu en fyrir hesta, hey og annað sem hestahaldi viðkemur er óheimil.

5. gr.

Samþykkt þessi tekur til umgengni, frágangs mannvirkja og starfsemi sem tengist húsdýrahaldi. Jafnframt skulu uppfyllt ákvæði reglugerðar nr. 730/2001 um fráveitu í Kópavogsbæ, samþykktar nr. 282/2005 um fráveitu í Garðabæ og samþykktar nr. 251/2000 um umgengni og þrifnað utanhúss í Sveitarfélaginu Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi.

6. gr.

Um eftirlit og framkvæmd samþykktar þessarar fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum.

7. gr.

Bæjarstjórnum Kópavogs og Garðabæjar er heimilt að innheimta eftirlitsgjöld í samræmi við gjaldskrá sem sett er samkvæmt 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar. Gjöld mega aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.

8. gr.

Umhverfi hesthúsa skal halda þrifalegu og frágangur lóðar vera snyrtilegur.

9. gr.

Gerði skulu malarborin og þau girt vönduðum girðingum. Halda skal undirlagi í gerðum snyrtilegu og endurnýja reglulega. Taðmenguðu efni úr gerðum skal fargað á viðurkenndum móttökustöðvum.

10. gr.

Á bílastæðum sem eru sameiginleg fyrir fleiri en eitt hesthús og á almennum bílastæðum utan lóðamarka hesthúsa er óheimilt að geyma númerslausar bifreiðar, kerrur, dráttarvélar, heyvinnslutæki, byggingarefni, heyrúllur, heybagga og aðra lausamuni. Bílastæði við hvert hesthús eru eingöngu ætluð fyrir bifreiðar og hestakerrur á skráningarnúmerum.

11. gr.

Vanda skal til alls frágangs húsa, girðinga og annarra mannvirkja og þeim haldið við þannig að upphaflegum tilgangi þeirra verði náð.

12. gr.

Geymsla á heyi skal vera innandyra eða á svæðum sem sérstaklega eru til þess ætluð samkvæmt deiliskipulagi.

13. gr.

Spón skal geyma innandyra eða í sérstökum spónageymslum sem hlotið hafa staðfestingu byggingarfulltrúa. Óheimilt er að losa spón á þann hátt að valdið geti óþrifum.

14. gr.

Hesthús skulu hafa steyptan grunn og botnplötu. Óheimilt er að gera kjallara eða haughús undir nýjum hesthúsum á svæðinu eða breyta eldri húsum í þá veru. Hvert hesthús skal hafa aðgang að steyptu gámastæði fyrir gám undir hrossatað og moð sem fellur til á lóð í samræmi við ákvæði deiliskipulags nema að uppfyllt verði skilyrði 1. mgr. 20. gr. Óheimilt er að hafa taðþrær utan byggingareits en nýta má hluta hesthúss undir lokað taðskýli.

15. gr.

Haughús í eða við hesthús skulu vera lekaheld. Húseigandi ber ábyrgð á því að haughús í eða við hesthús séu lekaheld. Hætt skal notkun haughúsa sem ekki uppfylla þetta skilyrði og skal frágangur vera með þeim hætti að hvorki stafi af hætta né óþrif.

16. gr.

Fráveituvatn frá salernum og kaffistofum skal leitt í fráveitu bæjarfélagsins. Sigvatn frá gámastæði, sbr. gr. 18 og hesthúsum skal leitt í felligildru og þaðan í fráveitu bæjarfélagsins. Felligildrur skulu aðgengilegar til tæminga og eftirlits en tæming er á ábyrgð húseigenda.

17. gr.

Ný hús skulu tengd fráveitu bæjarfélags áður en þau eru tekin í notkun. Eldri hesthús skulu tengjast fráveitu bæjarfélagsins þegar fráveitulögn er komin í hverfið og húseigendum hefur verið gert að tengja hús sín. Sama gildir um sigvatn frá hesthúsum, taðþróm og gámastæðum sem leiða skal í felligildrur og þaðan í fráveitukerfi bæjarfélagsins.

18. gr.

Heimilt er að nýta taðþrær á svæðinu, sem byggðar voru fyrir 1. júlí 2008 samkvæmt samþykktri bygginganefndarteikningu. Slíkar þrær skulu vera lekaheldar, yfirbyggðar, án niðurfalla og þannig gerðar og um þær hirt að hvorki stafi af óþrif, mengun né slysahætta. Húseigendur skulu fjarlægja taðþrær sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði fyrir 1. desember 2008. Hreinsun taðþróa skal vera með sama hætti og taðgeymslna.

19. gr.

Taðgámar skulu vera snyrtilegir og lekaheldir. Önnur uppsöfnun taðs er stranglega bönnuð á svæðinu.

20. gr.

Hesthúsaeigendur skulu fjarlægja tað og moð reglulega úr húsum sínum og tryggja að gámar eða taðgeymslur yfirfyllist ekki. Allt hrossatað skal fjarlægt eftir að hross eru komin í haga, þó eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Í taðgám má einungis setja hrossatað og moð en ekki annan úrgang. Umgengni um taðgeymslur og taðgáma, hreinsun þeirra og hreinsun hesthúsa skal vera með þeim hætti að ekki verði af óþrifnaður.

21. gr.

Óheimilt er að farga taði og moði á svæðinu. Tað og moð skal flutt til viðurkenndrar förgunar eða því fargað eins og reglur um góða búskaparhætti kveða á um sbr. reglugerð nr. 804/1999 um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri.

22. gr.

Almennum úrgangi skal komið í þar til gerða gáma sem staðsettir eru á svæðinu sbr. deiliskipulag. Hættulegum úrgangi (spilliefnum) s.s. fúavarnarefni, málningu, skordýra- og meindýraeitri, útrunnum lyfjum og lyfjaleyfum skal halda aðskildum frá öðrum úrgangi og skila inn til móttökustöðvar fyrir spilliefni. Við förgun á heyrúllu- eða heybaggaplasti skal fylgja gildandi reglugerðum á hverjum tíma.

23. gr.

Taði sem mengað er af sorpi, umbúðum eða plastefnum skal fargað sem heimilissorpi á kostnað húseiganda.

24. gr.

Urðun eða brennsla úrgangs á svæðinu er bönnuð.

25. gr.

Lausaganga hesta er bönnuð. Óheimilt er að láta hunda valsa lausa um svæðið, sbr. samþykkt nr. 154/2000 um hundahald.

26. gr.

Vegna brota á samþykkt þessari vísast til VIII. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

27. gr.

Framangreind samþykkt, sem samin er af heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og samþykkt af bæjarstjórn Kópavogsbæjar þann 10. júní 2008 og bæjarstjórn Garðabæjar þann 24. júní 2008, staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt er felld úr gildi samþykkt nr. 938/2003 um hesthúsahverfið Heimsenda í Kópavogi og samþykkt nr. 439/1991 um notkun og hreinsun taðþróa við hesthús í hesthúsahverfinu við Kjóavelli í Garðabæ.

Ákvæði til bráðabirgða.

Notkun hesthúsa sem ekki hafa tengingu við fráveitukerfi viðkomandi bæjarfélags skal hætt 1. júlí 2010.

Umhverfisráðuneytinu, 1. október 2008.

F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 16. október 2008

Tengd mál