Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Opinberir starfsmenn, Verkföll og vinnudeilur, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

19. desember 2025

Útgáfudagur

16. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1686/2025

19. desember 2025

AUGLÝSING

um þá starfsmenn Ísafjarðarbæjar sem eru undanskildir verkfallsheimild.

Skrár (listar) Ísafjarðarbæjar skv. 5.-8. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamning opinberra starfsmanna og lög nr. 129/2020 um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til.

Lagt fyrir bæjarráð 15. desember 2025 til samþykktar að viðhöfðu samráði við öll hlutaðeigandi stéttarfélög starfsmanna:

I.    Listi yfir þau störf sem falla undir 6.-8. tl. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna:

Bæjarstjóri 1 staða
Bæjarritari/sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs 1 staða
Sviðsstjóri velferðarsviðs 1 staða
Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs 1 staða
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs 1 staða
Fjármálastjóri 1 staða
Deildarstjóri í málefnum fatlaðra 1 staða
Launafulltrúi 2 stöður
Forstöðumaður íþróttamannvirkja á Flateyri, Ísafirði og Suðureyri 1 staða
Forstöðumaður íþróttamannvirkja á Þingeyri 1 staða
Forstöðumaður skíðasvæða 1 staða
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar 1 staða
Forstöðumaður Hvestu og skammtímavistunar 1 staða
Skólastjórar grunnskóla 4 stöður
Aðstoðarskólastjóri 1 staða
Leikskólastjórar 5 stöður
Aðstoðarleikskólastjóri 1 staða
Hafnarstjóri 1 staða
Slökkviliðsstjóri 1 staða
Aðstoðarslökkviliðsstjóri 1 staða

II.  Listi yfir þau störf sem falla undir 5. tl. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna:

Varðstjóri slökkviliðs 1 staða
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður 1 staða
Forstöðumaður sólarhringsþjónustu að Sindragötu og Pollgötu 1 staða
Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu 1 staða
Starfsmenn Hvestu hæfingarstöðvar og skammtímavistunar 4,49 stöðugildi auk tímavinnu. Miðað er við lágmarksmönnun.
Starfsmenn á dagdeild aldraðra Ísafirði 2,24 stöðugildi auk tímavinnu. Miðað er við lágmarksmönnun.
Starfsmenn stuðningsþjónustu Öll stöðugildi auk tímavinnu. Miðað er við lágmarksmönnun.
Starfsmenn sólarhringsþjónustu Pollgötu og Sindragötu Öll stöðugildi auk tímavinnu. Miðað er við lágmarksmönnun á hverju heimili.

Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar 15. desember 2025 og á fundi bæjarstjórnar 18. desember 2025. Jafnframt fellur úr gildi skrá sama efnis nr. 1764/2024.

Ísafirði, 19. desember 2025.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 16. janúar 2026

Tengd mál