Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

5. janúar 2016

Útgáfudagur

19. janúar 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 10/2016

5. janúar 2016

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2016.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2016, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1238/2015, er til 2. apríl nk. vegna manna, en til 31. maí 2016 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@rsk.is fyrir lok umsóknarfrests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2015 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2014, og að álögð gjöld 2016 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2015.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2016 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2016 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1238/2015 og taka þegar gildi.

Reykjavík, 5. janúar 2016.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 19. janúar 2016

Tengd mál