Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár

Undirritunardagur

19. ágúst 2014

Útgáfudagur

2. september 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 790/2014

19. ágúst 2014

SKIPULAGSSKRÁ

fyrir Hallgrímsstofu.

1. gr.

Heiti.

Sjálfseignarstofnunin heitir Hallgrímsstofa og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.

2. gr.

Heimilisfang.

Heimilisfang stofnunarinnar er í sveitarfélaginu Eyjafjarðarsveit.

3. gr.

Markmið.

Markmið stofnunarinnar er að halda á lofti minningu Hallgríms Kristinssonar samvinnufrömuðar og fyrsta forstjóra Sambands íslenskra samvinnufélaga (SÍS). Ráðstafa skal fjármunum sjálfeignarstofnunarinnar þannig að setja megi upp í opinberu safni Hallgrímsstofu, minningarstofu um starf Hallgríms sem forstjóra SÍS.

4. gr.

Stofnendur.

Stofnendur stofnunarinnar eru Hallgrímur Ingvarsson, kt. 091040-7199, Brynjólfur Ingvarsson, kt. 271041-3069, Páll Ingvarsson, kt. 220946-4019, Guðrún María Ingvarsdóttir, kt. 151248-3659 og Drífa Pálsdóttir, kt. 080445-2379.

5. gr.

Stofnfé.

Stofnfé stofnunarinnar er kr. 1.085.164, sem lagt er fram af stofnendum, sbr. 4. gr. Stofnfé er óskerðanlegt.

Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim verðmætum er hún kann að eignast síðar. Stofnendur hafa engin sérréttindi í stofnuninni.

6. gr.

Stjórn.

Stjórn stofnunarinnar skal skipuð fimm mönnum til 5 ára í senn. Jafnframt skulu við kjör á aðalmönnum í stjórn kosnir tveir menn í varastjórn til sama tíma. Stofnendur tilnefna fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn.

Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Stofnunin verður einungis skuldbundin með undirskriftum allra stjórnarmanna. Stjórn stofnunarinnar getur veitt umboð fyrir stofnunina.

Stjórnarfundir eru einungis lögmætir ef allir stjórnarmenn sækja fund. Engar ákvarðanir má taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.

7. gr.

Fundarboðun.

Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist þess að stjórnarfundur sé haldinn. Stjórninni er heimilt að setja sér starfsreglur þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa hennar.

8. gr.

Aðrar stjórnareiningar.

Stjórn stofnunarinnar er heimilt að ráða framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri á rétt til setu á stjórnarfundum þótt hann sé ekki stjórnarmaður, en hann fer þó ekki með atkvæðisrétt. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.

9. gr.

Endurskoðendur.

Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri löggilta endurskoðendur/skoðunarmenn til að endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Endurskoðendur/skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna stofnunarinnar.

10. gr.

Reikningsárið.

Reikningsárið er almanaksárið og er fyrsta reikningstímabil frá stofnun sjálfseignarstofnunarinnar og til næstu áramóta.

11. gr.

Breyting samþykkta, slit og sameining.

Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina stofnunina annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hana niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumannsins á Sauðárkróki. Komi til niðurlagningar stofnunarinnar skal hreinni eign hennar varið til markmiðanna sem greint er frá í 3. gr. hér að framan eða skyldra markmiða.

12. gr.

Staðfesting sýslumanns.

Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á skipulagsskrá þessari.

Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 19. ágúst 2014.

Bjarni Stefánsson.

Lára Kristín Gísladóttir.

B deild - Útgáfud.: 2. september 2014

Tengd mál