Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Atvinnuréttindi
Undirritunardagur
6. janúar 2017
Útgáfudagur
20. janúar 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 29/2017
6. janúar 2017
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi nr. 467/2015.
1. gr.
Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Heimilt er að veita umsækjanda um sérfræðileyfi skv. 10. gr. takmarkaða undanþágu á einstaklingsgrundvelli frá hluta sérnáms sem skráð er í lið 5.1.3. V. viðauka tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, samanber tilskipun 2013/55/ESB, enda hafi hann þegar lokið við þann hluta sérnámsins í öðru sérnámi í læknisfræði og þegar öðlast sérfræðileyfi á grundvelli þess sérnáms. Undanþágan má ekki taka til meira en helmings af lágmarkstíma í viðkomandi sérnámi.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
Við lið XIX. Viðbótarsérgreinar: bætast tveir nýir töluliðir sem verða 4. og 5. tölul. svohljóðandi:
-
Líknarlækningar:
Til
að
læknir
geti
hlotið
sérfræðileyfi
í
líknarlækningum
sem
viðbótarsérgrein
skal
hann
hafa
hlotið
sérfræðileyfi
í
aðalsérgrein
skv.
2.
mgr.
Þetta
á
þó
ekki
við
hafi
læknir
einungis
hlotið
sérfræðileyfi
í
atvinnu-
og
umhverfislækningum,
sérgreinum
innan
lækningarannsókna,
erfðalækningum,
lýðheilsufræði,
myndgreiningu,
réttarlæknisfræði
og
klínískri
taugalífeðlisfræði.
Til að öðlast viðurkenningu skal viðkomandi hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára viðurkenndu viðbótarsérnámi í líknarlækningum. -
Sérhæfðar
verkjalækningar:
Til
að
læknirgeti
hlotið
sérfræðileyfi
í
sérhæfðum
verkjalækningum
sem
viðbótarsérgrein
skal
hann
hafa
hlotið
sérfræðileyfi
í
aðalsérgrein
skv.
2.
mgr.
Þetta
á
þó
ekki
við
hafi
læknir
einungis
hlotið
sérfræðileyfi
í
atvinnu-
og
umhverfislækningum,
sérgreinum
innan
lækningarannsókna,
erfðalækningum,
lýðheilsufræði,
myndgreiningu,
réttarlæknisfræði
og
klínískri
taugalífeðlisfræði.
Til að öðlast viðurkenningu skal viðkomandi hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára viðurkenndu viðbótarsérnámi í sérhæfðum verkjalækningum.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 6. janúar 2017.
Kristján
Þór
Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 20. janúar 2017