Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Atvinnuréttindi, Siglingar - skip

Undirritunardagur

14. júní 2017

Útgáfudagur

16. júní 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 42/2017

14. júní 2017

LÖG

um breytingu á lögum nr. 30/2007, um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa (kröfur til mönnunar o.fl.).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:

  1. Á eftir orðinu „björgunarskipum“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: og vinnuskipum sjókvíaeldisstöðva.
  2. Í stað orðsins „Björgunarskip“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: Skip samkvæmt þessari málsgrein.
  3. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra skal mæla fyrir um farsvið vinnuskipa sjókvíaeldisstöðva í reglugerðinni.

2. gr.

Í stað orðanna „12 metrar og styttri“ í 1. málsl. 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 15 metrar og styttri.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 14. júní 2017.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Jón Gunnarsson.

A deild - Útgáfud.: 16. júní 2017

Tengd mál