Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla

Undirritunardagur

27. febrúar 2026

Útgáfudagur

13. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 246/2026

27. febrúar 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi fyrrum Helgafellssveitar vegna frístunda- og íbúðarbyggðar í landi Hóla 5a, Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

Skipulagsstofnun staðfesti 27. febrúar 2026 breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. september 2025.

Í breytingunni felst skilgreining nýrrar 1,9 ha frístundabyggðar og 1,3 ha íbúðarbyggðar. Landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur. Áform eru um að reisa 1 einbýlishús, allt að 250 m² að stærð, og 3 frístundahús, allt að 140 m² hvert.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 27. febrúar 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026

Tengd mál