Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Bílastæðasjóður Reykjavíkur

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

3. september 2010

Útgáfudagur

22. september 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 723/2010

3. september 2010

AUGLÝSING

um gjaldskyldu á bílastæðum á lóð Landspítala við nýjan inngang bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi.

Borgarráð ákvað eftirfarandi á fundi sínum 2. september 2010, með tilvísun til 20. gr. samþykktar um Bílastæðasjóð Reykjavíkur frá 1. mars 1988, sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987:

Almenn bílastæði á svæði næst inngangi bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi verði gjaldskyld.
Settir verði upp miðamælar á svæðinu sem skilgreinist sem gjaldsvæði 4 með tímagjaldinu 80 krónur. Gjaldskylda verður mánudaga – föstudaga klukkan 8-16.

Ákvörðunin tekur þegar gildi.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 3. september 2010.

Jón Gnarr.

B deild - Útgáfud.: 22. september 2010

Tengd mál