Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki

Undirritunardagur

14. nóvember 2019

Útgáfudagur

29. nóvember 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1056/2019

14. nóvember 2019

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja.

1. gr.

Við 42. gr. reglugerðarinnar bætist ný 7. mgr. sem orðast svo:

Með reglugerð þessari er innleidd framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2205 frá 29. nóvember 2017 um ítarlegar reglur um málsmeðferð við að tilkynna atvinnuökutæki með meiriháttar eða hættulega annmarka sem greinast við tæknilegt eftirlit á vegum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 20. júní 2019, bls. 289-297.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Jónas Birgir Jónasson.

B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019

Tengd mál