Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
8. maí 2023
Útgáfudagur
23. maí 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 486/2023
8. maí 2023
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „1. október“ í 4. málsl. 1. mgr. 57. gr. reglnanna koma orðin: 15. september.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 128. gr. reglnanna:
- a-liður 1. mgr. orðast svo: Til BS-prófs í ferðamálafræði, landfræði, líffræði og sjávar- og vatnalíffræði, auk lífefna- og sameindalíffræði.
- Á eftir orðinu „landfræði“ í upptalningu kennslugreina í b-lið 1. mgr. kemur orðið: lífefnafræði.
- Á eftir orðinu „landfræði“ í upptalningu kennslugreina í c-lið 1. mgr. kemur orðið: lífefnafræði.
- Í stað orðsins „tvær“ í 2. mgr. kemur orðið: þrjár.
- Á eftir orðinu „líffræði“ í 2. mgr. koma orðin: , námsbraut í lífefna- og sameindalíffræði.
- Núverandi 3. mgr. fellur brott.
- Núverandi 4. mgr. fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 132. gr. reglnanna:
- Orðið „ , lífefnafræði“ í upptalningu kennslugreina í a-lið 1. mgr. fellur brott.
- Orðin „lífefna- og sameindalíffræði í samstarfi við líf- og umhverfisvísindadeild“ í upptalningu kennslugreina í a-lið 1. mgr. falla brott.
- Orðið „lífefnafræði“ í upptalningu kennslugreina í b-lið 1. mgr. fellur brott.
- Orðið „lífefnafræði“ í upptalningu kennslugreina í d-lið 1. mgr. fellur brott.
-
4.
mgr.
orðast
svo:
Raunvísindadeild er skipað í þrjár námsbrautir, sbr. ákvæði 21. gr. þessara reglna; námsbraut í eðlisfræði, námsbraut í efnafræði og námsbraut í stærðfærði. - Núverandi 5. mgr. fellur brott.
- Núverandi 6. mgr. fellur brott.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 8. maí 2023.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 23. maí 2023