Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
25. mars 2026
Útgáfudagur
13. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 356/2026
25. mars 2026
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Hólssjóð, styrktarsjóð UÍF.
1. gr.Stofnandi.
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF), kt. 670169-1899, Fjallabyggð, hefur stofnað sjóð um fjármuni sem fengust fyrir sölu á húsnæði Hóls. Sjóðurinn heitir Hólssjóður.
Heimili og varnarþing sjóðsins er í Fjallabyggð.
2. gr.Tilgangur.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja aðildarfélög UÍF til að efla og þróa félagsstarfsemi, bæta aðstöðu, árlega sé þess kostur, með fjárframlögum samkvæmt 7. gr.
3. gr.Framlag.
Höfuðstóll sjóðsins eru þeir fjármunir sem fengust fyrir söluna á fasteigninni Hóll (F2129970), samtals 60.000.000 kr. Höfuðstóllinn telst vera stofn sjóðsins og skal hann ekki leiðréttur með tilliti til verðlags. Höfuðstólinn má aldrei skerða.
Úthlutunarhluti sjóðsins eru árlegir vextir af höfuðstól sjóðsins.
Sjóðurinn ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum.
Framlög sem bætast við sjóðinn í framtíðinni skulu annaðhvort:
- teljast með höfuðstól, ef það er sérstaklega tilgreint af gefanda eða samþykkt af stjórn sjóðsins, eða
- renna í úthlutunarhluta sjóðsins og mynda þann hlut sem úthlutað er samkvæmt úthlutunarreglum, eftir því sem tilgreint er af gefanda eða samþykkt af stjórn sjóðsins.
4. gr.Starfsemi.
Sjóðnum geta hlotnast eftirfarandi tekjur:
- Gjafir, erfðafé og áheit.
- Aðrar tekjur.
Framlögum skv. a–b-lið skal annaðhvort bætt við höfuðstól sjóðsins eða þau renna í úthlutunarhluta hans, í samræmi við ákvæði 3. gr.
Stjórn sjóðsins skal varðveita eignir hans og leitast við að ávaxta sjóðinn á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt í samræmi við tilgang sjóðsins. Ekki má við ávöxtun sjóðsins taka áhættu sem gæti haft neikvæð áhrif á tilgang sjóðsins. Ákvarðanir um ávöxtunarleiðir skulu teknar af stjórn sjóðsins og lagðar fyrir stjórn UÍF til staðfestingar.
Styrktarsjóðurinn og UÍF skulu hafa samstarf sín á milli um öflun styrkja og áheita til sjóðsins.
5. gr.Stjórn.
Stjórn sjóðsins skipa þrír einstaklingar og tveir til vara og sitja þeir í stjórn sjóðsins sem sjálfboðaliðar. Stjórn UÍF tilnefnir einstaklinga í stjórn sjóðsins. Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Stjórnarmenn skulu á hverjum tíma uppfylla lögbundin hæfisskilyrði til setu í stjórn sjóðsins. Missi stjórnarmenn hæfi til stjórnarsetu skulu þeir upplýsa sýslumann um það. Nú fellur stjórnarmaður frá, verður ófær um að gegna stjórnarstörfum vegna veikinda eða annarra annmarka, eða segir sig frá stjórnarstörfum, þá tekur varamaður sæti í hans stað.
Skipunartími stjórnarmanna er tvö ár í senn. Enginn skal sitja í stjórn sjóðsins lengur en í sex ár í senn. Stjórn sjóðsins skal tilkynna sýslumanni hverjir skipi stjórn hverju sinni.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Sjóðstjórn ber ábyrgð á fjárvörslu sjóðsins og fjárreiðum hans í samræmi við verklýsingu sem stjórnin setur sem og lög um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Jafnframt gerir stjórn áætlanir um tekjur og gjöld sjóðsins. Kostnaður við rekstur sjóðsins greiðist af úthlutunarhluta hans.
6. gr.Stjórnarfundir.
Boða skal til stjórnarfundar með tryggilegum hætti og með sjö daga fyrirvara. Formaður stýrir fundum og er í forsvari fyrir sjóðinn. Stjórnarfundur er ályktunarbær ef minnst tveir stjórnarmenn eða varamenn þeirra sækja fund. Vægi atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum.
Stjórnarmaður má ekki taka þátt í meðferð einstaks máls ef það málefni sem fyrir liggur til ákvörðunar skiptir hann verulega máli fjárhagslega eða siðferðislega. Ritari færir fundargerðir stjórnarfunda.
7. gr.Úthlutunarreglur.
Stjórn sjóðsins skal gera tillögu að úthlutunarreglum og heildarupphæð til úthlutunar fyrir hvert almanaksár. Gert er ráð fyrir eftirfarandi úthlutunarskiptingu:
15% af úthlutunarfé fer í Verkefnasjóð UÍF.
15% af úthlutunarfé fer í frístundastyrk UÍF.
70% af úthlutunarfé fer í Lottóútdeilingu UÍF.
Úthlutunin er eigi síðar en 10. febrúar ár hvert.
8. gr.Ársreikningar o.fl.
Reikningsár sjóðsins skal vera frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Ársreikningar skulu vera í samræmi við almennar, viðurkenndar reikningsskilavenjur á hverjum tíma og skoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum eða endurskoðunarfélagi. Ákvæði laga um bókhald gilda um hæfi og störf skoðunarmanna og trúnaðarmanna.
Skoðaðir reikningar sjóðsins skulu sendir sýslumanni eigi síðar en 31. ágúst ár hvert.
9. gr.Breytingar á skipulagsskrá. Slit sjóðsins.
Til að breyta skipulagsskrá þessari þarf samþykki allra stjórnarmanna. Hólssjóður verður ekki lagður niður nema með einróma samþykki stjórnarmanna. Slit skulu svo borin skriflega undir sýslumann.
Óheimilt er að framselja eða veðsetja eignir sjóðsins nema með samþykki sýslumanns.
Verði sjóðurinn lagður niður skal eignum hans ráðstafað af stjórn UÍF í þágu hagsmuna aðildarfélaga þess, samkvæmt markmiðum þeim sem fram koma í 2. gr.
10. gr.Staðfesting.
Leita skal staðfestingar sýslumanns á skipulagsskrá þessari, sbr. 12. tl. 4. gr. reglugerðar nr. 140/2008.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 25. mars 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Bergrún Halldórsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 13. apríl 2026