Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
25. maí 2020
Útgáfudagur
27. maí 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 499/2020
25. maí 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1125/2014 um frammistöðukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu og starfsemi neta.
1. gr.
4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/123 frá 24. janúar 2019 um ítarlegar reglur um framkvæmd í tengslum við starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 677/2011, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 399.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/317 frá 11. febrúar 2019 um frammistöðu- og gjaldtökukerfi fyrir samevrópska loftrýmið og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 390/2013 og (ESB) nr. 391/2013, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 318/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 1.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 161/2015 um sameiginlegt gjaldtökukerfi fyrir flugleiðsöguþjónustu.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. maí 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
B deild - Útgáfud.: 27. maí 2020