Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykhólahreppur
Málaflokkur
Skipulagsmál, Byggingarmál, Barðastrandarsýslur
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1721/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir byggingarleyfis-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Reykhólahreppi.
1. gr. Almenn ákvæði.
| 1.1 | Við útgáfu byggingarleyfis, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um. |
| 1.2 | Tekjum sveitarfélagsins samkvæmt gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila. |
2. gr. Byggingarleyfisgjald.
Fyrir byggingarleyfi skv. 9. gr., sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, skal greiða gjöld sem hér segir:
| 2.1 | Neðangreind gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. | |
| Einbýlishús | 232.719 kr. | |
| Parhús, tvíbýlishús eða raðhús á einni hæð | 195.973 kr. pr. íbúð | |
| Raðhús á fleiri en einni hæð eða fjölbýlishús með þremur íbúðum | 166.891 kr. pr. íbúð | |
| Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri | 141.433 kr. pr. íbúð | |
| Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri með fjórum íbúðum eða fleiri | 119.859 kr. pr. íbúð | |
| 2.2 | Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir: | |
| Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. | ||
| Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur allt að 500 m² | 232.719 kr. | |
| Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur stærri en 500 m² | 314.170 kr. | |
| 2.3 | Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar: | |
| Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. | ||
| Frístundahús stærri en 50 m² | 232.719 kr. | |
| Smáhýsi minna en 50 m² | 17.498 kr. | |
| Smáhýsi frá 10 m² að 25 m² (aukahús við frístunda- og íbúðarhús) | 58.180 kr. | |
| Frístundahús 25-50 m² | 116.359 kr. | |
| Sólstofur, bílageymslur og viðbyggingar allt að 20 m² | 58.180 kr. | |
| Sólstofur, bílageymslur og viðbyggingar 20-100 m² | 116.359 kr. | |
| Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru minni en 100 m² | 116.359 kr. | |
| Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru stærri en 100 m² skulu vera þau sömu og byggingarleyfisgjöld nýbygginga. | ||
| Vélageymslur/korngeymslur allt að 150 m² (ef stærra en 150 m² gildir sama gjald og um væri að ræða atvinnuhúsnæði) | 131.232 kr. | |
| Fjárhús, fjós og hesthús og/eða sambærileg hús allt að 150 m² (ef stærra en 150 m², gildir sama gjald og um væri að ræða atvinnuhúsnæði) | 131.232 kr. | |
| Gróðurhús allt að 150 m² (ef stærra en 150 m², gildir sama gjald og um væri að ræða atvinnuhúsnæði) | 131.232 kr. | |
| Gjald vegna húsa s.s. sumarhúsa sem flutt eru inn á svæði Reykhólahrepps fullbúin og sett á tilbúnar undirstöður | 116.359 kr. |
3. gr. Þjónustugjöld.
| 3.1 | Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir, sbr. 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. | ||||
| 3.1.1 | Afgreiðslugjald | 15.923 kr. | |||
| 3.1.2 | Endurskoðun aðaluppdrátta | 20.035 kr. | |||
| 3.1.3 | Breytt notkun á mannvirkjum | 78.062 kr. | |||
| 3.1.4 | Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla | 51.618 kr. | |||
| 3.1.5 | Úttekt vegna meistaraskipta | 51.618 kr. | |||
| 3.1.6 | Úttekt vegna byggingarstjóraskipta | 51.618 kr. | |||
| 3.1.7 | Úttekt vegna rekstrarleyfis | 51.618 kr. | |||
| 3.1.8 | Húsaleiguúttektir á íbúðarhúsnæði | 51.618 kr. | |||
| 3.1.9 | Húsaleiguúttektir á atvinnuhúsnæði | 51.618 kr. | |||
| 3.1.10 | Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga, 1-5 fastanúmer í húsi | 48.486 kr. | |||
| 3.1.11 | Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fastanúmer > 5 | 6.649 kr. | |||
| 3.1.12 | Tímabundin stöðuleyfi | 31.496 kr. | |||
| 3.1.13 | Staðfestingargjald vegna lóðarúthlutunar, óendurkræft | 40.420 kr. | |||
| 3.1.14 | Breyting og gerð á nýjum lóðarleigusamningi | 57.392 kr. | |||
| 3.1.15 | Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs | 31.496 kr. | |||
| 3.1.16 | Aukaúttekt | 18.186 kr. | |||
| 3.1.17 | Aukamæling á útsetningu húss | 89.238 kr. | |||
| 3.1.18 | GPS-mæling/lóðaruppdráttur (4-6 punktar) | 78.739 kr. | |||
| 3.1.19 | Stofnun lóðar | 51.175 kr. | |||
| 3.1.20 | Niðurrif mannvirkja | 15.787 kr. | |||
| Útprentun á gögnum, teikningum eða öðrum tilheyrandi skjölum (svart/hvítt): | |||||
| A4 = | 70 kr. | ||||
| A3 = | 149 kr. | ||||
| A2 = | 525 kr. | ||||
| A1 = | 875 kr. | ||||
| Útprentun á deiliskipulagsuppdráttum o.fl. í lit: | |||||
| A4 = | 262 kr. | ||||
| A3 = | 437 kr. | ||||
| A2 = | 875 kr. | ||||
| A1 = | 1.750 kr. | ||||
4. gr. Framkvæmdaleyfisgjald og gjald fyrir skipulagsvinnu.
| 4.1 | Fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu samkvæmt 13. gr. sbr. 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir: | |
| Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum auglýsinga og kynninga vegna málsins. | ||
| 4.2 | Skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. | |
| 4.3 | Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa sem er 15.004 kr./klst. eða gjald samkvæmt reikningi. | |
| Kostnaður vegna skipulagsvinnu. | ||
| 4.4 | Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga: | |
| Afgreiðslugjald | 15.923 kr. | |
| Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr., skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.748 kr./klst. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. | 472.436 kr. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. | 314.957 kr. | |
| 4.5 | Kostnaður vegna nýs deiliskipulags: | |
| Afgreiðslugjald | 15.923 kr. | |
| Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr., skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.748 kr./klst. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. | 209.972 kr. | |
| 4.6 | Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi: | |
| Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr., skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.748 kr./klst. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga, sbr. 1. mgr. 43. gr. | 209.972 kr. | |
| 4.7 | Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi: | |
| Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr., skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.004 kr./klst. | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 2. mgr. 43. gr. | 69.991 kr. | |
| 4.8 | Kostnaður vegna grenndarkynningar: | |
| Grenndarkynning | 69.991 kr. | |
| Grenndarkynning, minniháttar | 30.621 kr. | |
| Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis. | ||
| 4.9 | Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins. | |
| 4.10 | Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma. | |
| 4.11 | Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni. | |
| 4.12 | Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins. | |
| 4.13 | Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir: | |
| Afgreiðslugjald | 15.923 kr. | |
| Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.748 kr./klst. | |
| Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald | 15.748 kr./klst. | |
| Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi | 15.923 kr. | |
| Umsýsla og yfirferð gagna | 24.497 kr. | |
| Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar | 15.923 kr. | |
| Áfangaúttekt | 63.166 kr. | |
5. gr. Gjalddagi, lögveð.
| 5.1 | Gjalddagi afgreiðslugjalda er við afgreiðslu umsókna. |
| 5.2 | Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis. |
| 5.3 | Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis. |
| 5.4 | Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingarleyfi falli úr gildi eða umsókn dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis. |
| 5.5 | Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. |
6. gr. Verðlagsbreytingar.
Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2025 og breytast 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.
7. gr. Gildistaka o.fl.
Gjaldskrá þessi, sem er samþykkt í sveitarstjórn Reykhólahrepps 10. desember 2025 er í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslög nr. 123/2010. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu, á sama tíma fellur út gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1818/2024.
Reykhólahreppi, 15. desember 2025.
Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026