Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
16. desember 2015
Útgáfudagur
29. desember 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1201/2015
16. desember 2015
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2016.
Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2016 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2016.
Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.
Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2016 er sem hér segir:
| Tegund | Krónur | Eining |
| Mjólk | 84 | pr. lítra |
| Egg | 512 | pr. kg |
| Kartöflur | 102 | pr. kg |
| Rófur | 143 | pr. kg |
| Gulrætur | 305 | pr. kg |
| Lambakjöt | 652 | pr. kg |
| Kjöt af veturgömlu fé | 265 | pr. kg |
| Annað kjöt af sauðfé | 180 | pr. kg |
| Ungnautakjöt | 790 | pr. kg |
| Annað kjöt af nautgripum | 464 | pr. kg |
| Folaldakjöt | 305 | pr. kg |
| Annað kjöt af hrossum | 120 | pr. kg |
| Grísakjöt | 416 | pr. kg |
| Annað svínakjöt | 293 | pr. kg |
| Kjúklingar | 429 | pr. kg |
| Annað fuglakjöt | 640 | pr. kg |
| Lax og silungur | 650 | pr. kg |
| Annar fiskur | 300 | pr. kg |
Reykjavík, 16. desember 2015.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 29. desember 2015