Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Atvinnuréttindi, Siglingar - skip
Undirritunardagur
24. janúar 2025
Útgáfudagur
7. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 136/2025
24. janúar 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 676/2015 um menntun, þjálfun og atvinnuréttindi farmanna.
1. gr.
Eftirfarandi breyting verður á 3. gr. reglugerðarinnar:
Skilgreining á „Tilskipunin“ verður svohljóðandi:
Tilskipunin: tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2022/993 frá 8. júní 2022 um lágmarksmenntun og -þjálfun farmanna.
2. gr.
5. mgr. 9. gr. a reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi:
Samgöngustofa getur sett frekari takmarkanir á stöður, starfssvið og réttinda- eða hæfnisstig í tengslum við strandsiglingar, eins og um getur í 8. gr. tilskipunarinnar og 7. gr. reglugerðar þessarar eða önnur skírteini sem eru gefin út samkvæmt reglu VII/1 í I. viðauka, sbr. þó 2. tölul. þessarar greinar.
3. gr.
10. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
-
Farmönnum,
sem
hafa
ekki
undir
höndum
réttindaskírteini
útgefið
af
EES-ríki
og/eða
hæfnisskírteini,
fyrir
skipstjóra
og
yfirmenn,
í
samræmi
við
reglur
V/1-1
og
V/1-2
í
STCW-samþykktinni,
er
heimilt
að
starfa
um
borð
í
skipum,
sem
sigla
undir
fána
EES-ríkis,
að
því
tilskildu
að
réttindaskírteini
eða
hæfnisskírteini,
sem
þeir
hafa
undir
höndum,
hafi
verið
viðurkennd
samkvæmt
málsmeðferðinni
sem
mælt
er
fyrir
um
í
20.
gr.
tilskipunarinnar.
Telji Samgöngustofa að viðurkennt þriðja ríki uppfylli ekki lengur kröfur STCW-samþykktarinnar skal hún tilkynna það í samræmi við 21. gr. tilskipunarinnar.
4. gr.
25. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Reglugerð þessi er til innleiðingar á eftirtalinni tilskipun (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/993 frá 8. júní 2022 um lágmarksmenntun og -þjálfun farmanna, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 288/2023 frá 27. október 2023. Tilskipunin er birt í EES viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 204-249.
5. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 37. gr. laga nr. 82/2022 um áhafnir skipa og öðlast þegar gildi.
Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur brott tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/106/EB frá 19. nóvember 2008 um lágmarksþjálfun sjómanna. Líta ber á tilvísanir í niðurfelldu tilskipuninni sem tilvísanir í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/993 frá 8. júní 2022 um lágmarksmenntun og -þjálfun farmanna og skulu þær lesnar með hliðsjón af samsvörunartöflunni í V. viðauka þeirrar tilskipunar.
Innviðaráðuneytinu, 24. janúar 2025.
F. h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,
Árni Freyr Stefánsson.
Katrín Pálsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 7. febrúar 2025