Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Reykjavík, Félagsmál, Húsnæðismál
Undirritunardagur
27. nóvember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1359/2025
27. nóvember 2025
AUGLÝSING
um breytingu á reglum Reykjavíkurborgar, nr. 1094/2016, um sérstakan húsnæðisstuðning.
1. gr.
2. mgr. 4. gr. reglnanna breytist og orðast svo:
Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei numið hærri fjárhæð en samtals 110.000 kr. Framangreindar fjárhæðir koma til endurskoðunar þegar breyting verður á grunnfjárhæðum húsnæðisbóta samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 75/2016.
2. gr.
Breytingar þessar, sem samþykktar voru á fundi velferðarráðs 1. október 2025 og á fundi borgarstjórnar 18. nóvember 2025, eru byggðar á 2. og 3. mgr. 45. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2026.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 27. nóvember 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025