Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Suðurnesjabær

Undirritunardagur

7. maí 2026

Útgáfudagur

15. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 488/2026

7. maí 2026

SAMÞYKKT

um stjórn Suðurnesjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLIUm skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar er skipuð níu fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt 1. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Um kosningar til bæjarstjórnar gilda kosningalög, nr. 112/2021.

2. gr.Sjálfstætt stjórnvald.

Suðurnesjabær er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.Verkefni sveitarfélagsins.

Suðurnesjabær annast þau lögmæltu verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Suðurnesjabær vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Suðurnesjabæ er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLIUm bæjarstjórn.

4. gr.Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, annarra laga og samkvæmt samþykkt þessari.

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.Verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins, sbr. 8. gr. sveitarstjórnarlaga.
  2. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipun sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að samþykkja og hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Að setja nefndum, ráðum og stjórnum erindisbréf þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.

6. gr.Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi halda fráfarandi bæjarstjórnir umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna og sveitarstjórnarlögum. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara

7. gr.Kjör forseta og varaforseta.

Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og fyrsta og annan varaforseta bæjarstjórnar. Skulu þeir kosnir til eins árs í senn.

Njóti forseti bæjarstjórnar eða varaforsetar ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti bæjarstjórnar eða varaforsetar forfallast varanlega eða fá lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta bæjarstjórnar og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta bæjarstjórnar skal kjósa fyrsta og annan varaforseta. Kosning varaforseta bæjarstjórnar fer fram með sama hætti og forseta bæjarstjórnar. Varaforsetar gegna störfum forseta bæjarstjórnar í forföllum hans í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

III. KAFLIFundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi bæjarstjórnar í ráðhúsi sveitarfélagsins á virkum degi í fyrstu viku hvers mánaðar og skulu þeir að jafnaði hefjast kl. 17.30. Bæjarstjórn ákveður á fyrsta fundi sínum hvaða dag vikunnar bæjarstjórnarfundir fara fram.

Aukafundi skal halda þegar forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan, sbr. 2. mgr. 14. gr. sveitarstjórnarlaga.

Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjarstjórnar vegna sumarleyfis.

9. gr.Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri boðar fundi bæjarstjórnar. Fundarboð skal berast bæjarfulltrúum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst bæjarstjóra. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.

Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind. Fundarboð ásamt dagskrá fundar og gögnum skulu að jafnaði send bæjarfulltrúum með rafrænum hætti.

10. gr.Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir bæjarráðs og fastra nefnda sem og fundargerðir og ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins sem fela í sér ályktanir og tillögur sem taka þarf fyrir í bæjarstjórn sbr. 3. tölul. hér fyrir neðan.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti bæjarstjórnar ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti þrem sólarhringum fyrir fundinn.

Ráð og nefndir sem vilja vísa máli til bæjarstjórnar skulu hafa skilað samþykkt um það í frágenginni fundargerð þrem sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund.

11. gr.Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins á vefsíðu þess innan sömu tímafresta og gilda um fresti til boðunar funda og á við um bæjarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.Opnir fundir bæjarstjórnar.

Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

13. gr.Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé viðstaddur á fundi.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.Þátttaka í fundi með rafrænum hætti.

Heimilt er einstökum nefndarmanni að taka þátt í fundum bæjarstjórnar, ráða og nefnda með rafrænum hætti í gegnum fjarfundabúnað skv. 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga ef hann er staddur innan sveitarfélagsins eða í erindagjörðum á vegum Suðurnesjabæjar en að öðrum kosti skal kalla inn varamann. Nefndarmaður sem óskar eftir að taka þátt í fundi með rafrænum hætti skal tilkynna það forseta og bæjarstjóra með nægilegum fyrirvara. Með sama hætti og sömu fyrirvörum er nefndarmönnum heimilt að taka þátt með rafrænum hætti á fundum nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins.

Ef nefndarmaður, einn eða fleiri, taka þátt í fundi með fjarfundabúnaði skal tryggja jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna. Um framkvæmd fjarfunda skal annars fara eftir leiðbeiningum um fjarfundi sveitarstjórna, sbr. auglýsingu nr. 1182/2021.

15. gr.Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

16. gr.Fundarsköp og ritun fundargerða.

I. Fundarsköp.

  1. Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
  2. Vald forseta. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema bæjarstjórn eða forseti ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarfulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
  5. Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
    Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða bæjarstjóra eða framsögumann svo og bæjarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar.
    Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti í hvaða röð þeir tala.
    Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta.
    Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
    Ekki má lesa prentað mál nema forseti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
    Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.

II. Ritun fundargerða.

Um ritun fundargerða fer eftir auglýsingu nr. 1181/2021 um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

17. gr.Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarmanna og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarmanni eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga

18. gr.Varamenn í bæjarstjórn.

Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.

Ef framboðslisti hefur verið borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um að varamenn listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalmaður, taki sæti hans í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn varamaður af viðkomandi lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og sá aðalfulltrúi sem í hlut á, taka varamenn listans sæti samkvæmt venjulegum reglum. Hér skal ávallt miðað við stöðu viðkomandi á þeim tíma er kjör til sveitarstjórnar fór fram.

Tilkynning um slíkt fyrirkomulag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

IV. KAFLIRéttindi og skyldur bæjarstjórnarmanna.

19. gr.Skyldur bæjarstjórnarmanna.

Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti bæjarstjórnar heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.

Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

20. gr.Réttur bæjarstjórnarmanna.

Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess. Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.

Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta bæjarstjórnar um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.

21. gr.Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn.

Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

Óski bæjarfulltrúi gagna sem liggja fyrir í stjórnsýslu sveitarfélagsins skal beina því til bæjarstjóra og viðkomandi embættismanns, sem veita honum afrit af gögnum og upplýsingum.

Séu gögn viðamikil eða undanþegin upplýsingarétti almennings er heimilt að ákveða að afhending gagna fari fram á bæjarskrifstofu í tiltekinn tíma, en að gögn verði ekki afhent utan bæjarskrifstofanna.

Ef beiðni bæjarfulltrúa varðar viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í bæjarstjórn, er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.

22. gr.Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

23. gr.Lausn frá störfum.

Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún létti af honum störfum eða veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirframákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar bæjarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í bæjarstjórn á kjörtímabilinu taki hann aftur búsetu með lögheimili í sveitarfélaginu.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

24. gr.Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.

25. gr.Þóknun o.fl.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

26. gr.Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.

V. KAFLIBæjarráð.

27. gr.Kosning bæjarráðs.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs í senn. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjaráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimilt er þó að ákveða að aðalmenn og varamenn af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður verði varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna aðalmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.

28. gr.Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fundi tvisvar í hverjum mánuði, samkvæmt fundaáætlun sem bæjarstjórn ákveður.

Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.

29. gr.Boðun funda bæjarráðs.

Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs í samráði við formann bæjarráðs. Bæjarstjóri sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna það bæjarstjóra og óska eftir því að varamaður verði boðaður.

30. gr.Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsfulltrúi óskar þess.

Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar. Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. Heimilt er að boða aðra á fundi bæjarráðs til viðræðna um tiltekin mál.

31. gr.Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Hafi bæjarstjórn verið kjörin bundinni hlutfallskosningu og einhver framboðsaðili sem fulltrúa á í bæjarstjórn nær ekki kjöri í bæjarráð er fulltrúum þessa aðila heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum ráðsins. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi í bæjarráði skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í bæjarráð, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði um launakjör aðalmanna í bæjarráði eiga einnig við um áheyrnarfulltrúa í bæjarráði.

32. gr.Verkefni bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir bæjarstjórn.

Þá sér bæjarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Bæjarráð fer með jafnréttismál sveitarfélagsins skv. 13. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020.

Bæjarráð fer með málefni atvinnumála.

Bæjarráð fer með stjórn vatnsveitu og fráveitu.

Fundargerðir sem ekki þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar eru lagðar fram í bæjarráði. Fundargerðir fastanefnda skulu þó ávallt vera lagðar fram í bæjarstjórn.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar.

33. gr.Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarráði er heimil fullnaðarákvörðun mála sem eigi varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina, en meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella. Þá er heimilt að fela bæjarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála sem samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins hafa áður komið til umfjöllunar annarra nefnda sveitarstjórnar.

Verði ágreiningur um ákvörðun í bæjarráði telst málið ekki til lykta leitt fyrr en það hefur hlotið staðfestingu á næsta reglulega fundi bæjarstjórnar.

VI. KAFLIFastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

34. gr.Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar. Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

35. gr.Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

36. gr.Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðri málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið í samþykkt þessari eða með sérstökum viðauka við hana að fela nefnd, ráði eða stjórn fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs ef lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því.

Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt 1. mgr. og getur kallað eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Þriðjungur fulltrúa í nefnd, ráði eða stjórn sem hefur fengið framselt vald til fullnaðafgreiðslu máls, sbr. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn eða bæjarráð taki ákvörðun í máli.

Þegar bæjarstjórn neytir heimildar samkvæmt 1. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.

Um endurupptöku mála gildir að öðru leyti 24. gr. stjórnsýslulaga.

Heimildir nefnda, ráða og stjórna til fullnaðarafgreiðslu mála eru háðar því að samþykktir þeirra, sem hafa í för með sér útgjöld, séu innan heimilda í fjárhagsáætlun fyrir viðkomandi málaflokk.

37. gr.Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir fastanefnda skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum fundi. Einnig skulu allar fundargerðir ráða, nefnda og stjórna bæjarins sem innihalda ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar lagðar fyrir bæjarstjórn.

Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar ber að leggja þær fyrir sem sérstök mál og afgreiða með formlegum hætti. Hafi ályktun ráðs, nefndar eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktun ætíð lögð fyrir bæjarstjórn.

38. gr.Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.

Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarmanns um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á næsta nefndarfundi á undan, svo fremi sem lög eða eðli máls hamla því ekki.

Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

39. gr.Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar.

40. gr.Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um þetta samkomulag skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

41. gr.Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

42. gr.Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur bæjarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

43. gr.Áheyrnarfulltrúar.

Framboðslista sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn fulltrúa í fastanefnd er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu á fundum nefnda með málfrelsi og tillögurétt. Þetta á þó ekki við um barnaverndarnefndir.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

44. gr.Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

45. gr.Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

46. gr.Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

47. gr.Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

  1. Bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga og 27. gr. samþykktar þessarar.

B. Til fjögurra ára. Á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum:

  1. Menntaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði fræðslumála ásamt því að fara með verkefni skólanefnda sbr. 6. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, málefni tónlistarskóla sbr. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, og verkefni leikskólastjórnar skv. 4. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008. Nánar um störf nefndarinnar fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni.
  2. Íþrótta- og tómstundaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði íþrótta, tómstunda og forvarna. Nánar um störf nefndarinnar fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni.
  3. Ferða-, safna- og menningarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði ferða-, safna- og menningarmála ásamt því að fara með verkefni bókasafnsstjórnar skv. 8. gr. bókasafnalaga, nr. 150/2012. Nánar um störf nefndarinnar fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni.
  4. Fjölskyldu- og velferðarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði fjölskyldumála og velferðar ásamt því að fara með verkefni félagsmálanefndar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Ráðið fer með verkefni yfirstjórnar barnaverndarþjónustu skv. 12. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Nánar um störf fjölskyldu- og velferðarráðs fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni.
  5. Framkvæmda- og skipulagsráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði framkvæmda-, umhverfis- og skipulagsmála ásamt því að fara með verkefni skipulagsnefndar skv. 6. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010, byggingarnefndar skv. 7. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, húsnæðisnefndar skv. 6. gr. laga húsnæðismál, nr. 44/1998, verkefni á grundvelli umferðarlaga, nr. 77/2019, verkefni á grundvelli laga um landgræðslu, nr. 155/2018, og náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013. Nánar um störf nefndarinnar fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni. Framkvæmda- og skipulagsráði er heimilt samkvæmt samþykkt þessari að úthluta lóðum í samræmi við samþykkt deiliskipulag án staðfestingar bæjarstjórnar. Ráðið getur vísað afgreiðslu slíkra mála til bæjarstjórnar og skal það gert sé þess óskað af þriðjungi fulltrúa í ráðinu hið fæsta. Um endurupptöku mála sem hlotið hafa fullnaðarafgreiðslu framkvæmda- og skipulagsráðs fer eftir 49. gr.
  6. Hafnarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem bæjarstjórn felur ráðinu á sviði hafnamála ásamt því að fara með verkefni hafnarráðs Sandgerðishafnar skv. 10. gr. hafnalaga, nr. 61/2003, og samkvæmt hafnarreglugerð Sandgerðishafnar. Nánar um störf nefndarinnar fer samkvæmt erindisbréfi sem bæjarstjórn setur henni.
  7. Yfir- og undirkjörstjórnir við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í yfirkjörstjórn skv. 17. gr. kosningalaga, nr. 112/2021. Jafnframt þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í undirkjörstjórnir kjördeilda í Garði og Sandgerði, skv. 2. mgr. 17. gr. kosningalaga, nr. 112/2021.
  8. Bílastæðasjóður. Stjórn sjóðsins er skipuð þrem fulltrúum, sbr. 1. gr. samþykkta um Bílastæðasjóð Suðurnesjabæjar frá 4. desember 2019.
  9. Ungmennaráð. Ráðið er skipað sjö fulltrúum til tveggja ára í senn, sbr. samþykkt um ungmennaráð Suðurnesjabæjar.
  10. Umdæmisráð barnaverndar. Suðurnesjabær stendur sameiginlega að umdæmisráði barnaverndar í samstarfi við önnur sveitarfélög samkvæmt samningi þar um, í samræmi við 14. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Skipað er í umdæmisráð samkvæmt samningi milli viðkomandi sveitarfélaga.

C. Tilnefningar þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga og í stjórnir:

  1. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi samþykktir SSS.
  2. Almannavarnanefnd. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um almannavarnir, nr. 82/2008.
  3. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja. Bæjarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 45. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
  4. Stjórn Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi samþykktir Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.
  5. Brunavarnir Suðurnesja. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi samþykktir Brunavarna Suðurnesja.
  6. Heklan – atvinnuþróunarfélag Suðurnesja. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi erindisbréf og samþykktir um stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
  7. Reykjanes jarðvangur ses. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi samþykktir Reykjanes jarðvangs ses.
  8. Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar. Tilnefna skal fulltrúa í samræmi við gildandi lög og samþykktir er eiga við um störf nefndarinnar.
  9. Stjórn Náttúrustofu Suðvesturlands. Þrír aðalmenn og þrír til vara skv. 12. gr. laga um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur, nr. 54/2024.
  10. Þekkingarsetur Suðurnesja. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi skipulagsskrá Þekkingarseturs Suðurnesja.
  11. Fagráð Háskólaseturs Suðurnesja. Tilnefna skal fulltrúa í stjórn í samræmi við gildandi lög og samþykktir er eiga við um fagráðið.
  12. Öldungaráð. Skipa skal í öldungaráð á grundvelli 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með hliðsjón af 8. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Skipa skal þrjá fulltrúa og þrjá til vara, eða samkvæmt sérstöku samkomulagi við önnur sveitarfélög vegna samstarfs um öldrunarþjónustu.
  13. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, nr. 68/1994.
  14. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bæjarstjórn kýs fulltrúa á landsþing í samræmi við gildandi samþykktir Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  15. Um kosningar í byggðasamlög fer skv. 94. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

D. Verkefnabundnar nefndir:

Bæjarstjórn og bæjarráð geta skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

48. gr.Endurupptaka mála.

Eftir að starfsmaður, stjórn, nefnd eða ráð hefur tekið ákvörðun og hún hefur verið tilkynnt, á aðili máls rétt á því að mál sé tekið fyrir að nýju ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem hafa breyst verulega frá því ákvörðun var tekin, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptaka er heimil innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina.

VII. KAFLIBæjarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

49. gr.Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin og skal ráðningarsamningur staðfestur af bæjarstjórn. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.

50. gr.Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.

Bæjarstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.

Bæjarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóri ákveður í samráði við bæjarstjórn hver gegna skal störfum hans í forföllum hans.

51. gr.Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Bæjarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, sem heyra beint undir bæjarstjóra samkvæmt skipuriti þess og að fenginni tillögu bæjarstjóra. Bæjarstjórn veitir þessum sömu starfsmönnum lausn frá störfum hvort heldur er fullnaðarlausn eða tímabundna.

52. gr.Um ráðningu annarra starfsmanna.

Æðstu stjórnendur sem heyra beint undir bæjarstjóra og forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins ráða starfsmenn sinna stofnana, fasta og lausráðna að fenginni staðfestingu bæjarstjóra og veita þeim lausn frá störfum að fenginni staðfestingu bæjarstjóra, nema vald til slíks sé með lögum fengið öðrum aðilum eða á annan veg mælt fyrir í reglugerðum um sérmál tiltekinna stofnana og enda hafi bæjarstjórn ekki ákveðið annað í samþykkt þessari eða með almennum fyrirmælum sem hafa verið birt.

53. gr.Framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í samþykkt þessari eða með sérstökum viðauka við hana, að fela einstaka starfsmönnum sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu tiltekinna mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 36. gr. samþykktar þessarar.

Starfsmaður sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu getur farið fram á að sveitarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykkt þessari, taki ákvörðun í máli.

Sveitarstjórn eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls sem hefur verið fullnaðarafgreitt á grundvelli 1. eða 2. mgr. til sveitarstjórnar. Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Sviðsstjóri velferðarsviðs eða staðgengill í umboði sviðsstjóra afgreiða án staðfestingar fjölskyldu- og velferðarráðs og bæjarstjórnar, mál sem byggja á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Beiðni um endurupptöku á ákvörðunum skv. 1. mgr. skal beint til fjölskyldu- og velferðarráðs.

Sviðsstjóri eða starfsfólk í umboði sviðsstjóra getur ávallt óskað eftir því að fjölskyldu- og velferðarráð taki ákvörðun í máli skv. 4. tl. 47. gr. samþykktar þessarar.

Fjölskyldu- og velferðarráð skal upplýst reglulega með almennum hætti um mál sem starfsmenn afgreiða í umboði ráðsins.

Sviðsstjóri velferðarsviðs eða staðgengill í umboði sviðsstjóra fara með vald til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, og bera ábyrgð á öllum verkefnum og ákvörðunum sem byggja á barnaverndarlögum sem ekki hafa verið falin öðrum þ.m.t. umdæmisráði, dómstólum eða öðrum stjórnvöldum, sbr. 2. mgr. 10. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, sbr. viðauka 1, sem birtur er með samþykkt þessari.

Beri aðili fram kvörtun vegna afgreiðslu Barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar skal leiðbeina honum um réttarstöðu sína, m.a. um heimild til að óska endurupptöku stjórnvaldsákvörðunar hjá starfsmönnum Barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Endurupptaka er heimil innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls til þess starfsmanns, skv. 5. mgr. 53. gr. sem ekki tók hina upphaflegu ákvörðun. Telji sá starfsmaður að skilyrði endurupptöku séu fyrir hendi skal Barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar taka málið upp að nýju.

54. gr.Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn sveitarfélagsins og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

55. gr.Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLIFjármál sveitarfélagsins.

56. gr.Fjárstjórnunarvald bæjarstjórnar.

Einungis bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál og fjárhag sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

57. gr.Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

58. gr.Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 57. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnar.

59. gr.Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga.

60. gr.Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetningar og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

61. gr.Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

62. gr.Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

IX. KAFLISamvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna.

63. gr.Samvinna sveitarfélaga.

Bæjarstjórn er heimilt að eiga samstarf um rækslu verkefna við annað eða önnur sveitarfélög og framselja vald til töku ákvarðana um rétt og skyldu manna. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla sveitarstjórnarlaga og þeim sérlögum sem við eiga.

64. gr.Samningar við einkaaðila.

Bæjarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélagið, enda sé áætlað fyrir viðkomandi verkefni í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins, sbr. 100. gr. sveitarstjórnarlaga. Skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.

X. KAFLISamráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

65. gr.Samráð við íbúa, borgarafundir, íbúaþing, íbúakosningar, upplýsingar til íbúa o.fl.

Um samráð við íbúa, þ.m.t. íbúafundi, íbúaþing og íbúakosningar, gilda ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

66. gr.Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 25% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

67. gr.Gildistaka.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Suðurnesjabæjar, nr. 450/2018.

Innviðaráðuneytinu, 7. maí 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi