Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

7. desember 2016

Útgáfudagur

30. desember 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1259/2016

7. desember 2016

REGLUR

um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2017.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2017 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2017.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2017 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 86 pr. lítra
Egg 512 pr. kg
Kartöflur 102 pr. kg
Rófur 132 pr. kg
Gulrætur 285 pr. kg
Lambakjöt 520 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 178 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 121 pr. kg
Ungnautakjöt 816 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 464 pr. kg
Folaldakjöt 305 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 75 pr. kg
Grísakjöt 430 pr. kg
Annað svínakjöt 226 pr. kg
Kjúklingar 429 pr. kg
Annað fuglakjöt 640 pr. kg
Lax og silungur 650 pr. kg
Annar fiskur 300 pr. kg

Reykjavík, 7. desember 2016.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016

Tengd mál