Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
4. janúar 2024
Útgáfudagur
18. janúar 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 20/2024
4. janúar 2024
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2024.
- Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2024, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1470/2023, er til og með 31. maí 2024 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið umsoknir@skatturinn.is fyrir lok umsóknarfrests.
- Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2023 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. á tekjuárinu 2022, og að álögð gjöld 2024 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en var við álagningu 2023.
- Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2024 ásamt lögboðnum fylgiskjölum, þ.m.t. ársreikningi. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2024 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
- Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1470/2023 og tekur þegar gildi.
Reykjavík, 4. janúar 2024.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2024