Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

11. desember 2023

Útgáfudagur

27. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1520/2023

11. desember 2023

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2024.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2023, álagningarárið 2024, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

kr.
Mjólkurkýr 152.000
Holdakýr og naut 160.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 135.000
Geldneyti 79.000
Kálfar, yngri en ½ árs 15.000
Ær og sauðir 8.400
Hrútar 20.000
Gemlingar 12.500
Geitur 12.000
Hross á 14. vetri og eldri 24.000
Hross á 5. – 13. vetri 55.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 240.000
Önnur nýtanleg reiðhross 135.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 390.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 520.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 660.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 18.000
Folöld 13.000
Hænsni, eldri en 6 mánaða 1.150
Varphænsni 6 mánaða og yngri 785
Kjúklingar 335
Endur 1.180
Gæsir 2.360
Kalkúnar 3.540
Gyltur 53.000
Geltir 77.000
Grísir 14.000
Kanínur 5.500
Minkar: Karldýr 5.400
Kvendýr 3.600
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 11. desember 2023.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023

Tengd mál