Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Sjávarútvegur, Landhelgismál

Undirritunardagur

14. mars 2026

Útgáfudagur

20. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 18/2026

14. mars 2026

LÖG

um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIBreyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:

Grásleppuveiðar skulu háðar sérstöku leyfi Fiskistofu og eiga þeir bátar einir kost á slíku
leyfi sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997 samkvæmt reglum þar um eða leiða rétt sinn af þeim bátum. Fiskistofu er óheimilt að gefa út ný grásleppuveiðileyfi, sem ekki byggjast á fyrri leyfum, til báta sem mælast stærri en 15 brúttótonn. Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um skipulag grásleppuveiða og veiðitíma samkvæmt þessari málsgrein. Getur ráðherra m.a. ákveðið að leyfin séu bundin við ákveðið svæði og að aðeins hljóti leyfi til veiða á tilteknu svæði skip sem skráð eru á því svæði. Þá getur ráðherra sett reglur um heimildir til flutnings leyfa til grásleppuveiða milli báta.

2. gr.

Við 2. mgr. 21. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar til réttaráhrifum leyfissviptingar lýkur er hvorki heimilt að flytja réttindi grásleppuveiðileyfis af bát né réttindi grásleppuveiðileyfis til viðkomandi báts.

II. KAFLIBreyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

3. gr.

7. gr. a laganna fellur brott.

4. gr.

7. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.

5. gr.

7. málsl. 6. mgr. 12. gr. laganna fellur brott.

6. gr.

Eftirfarandi lína í töflu 1. mgr. 13. gr. laganna fellur brott:

Grásleppa 1,5%

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:

  1. Lokamálsliður 6. mgr. fellur brott.
  2. 10. mgr. fellur brott.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XXV í lögunum:

  1. Á eftir orðinu „til“ í 2. mgr. kemur: og með.
  2. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er einnig óheimilt að flytja aflamark skips í grásleppu yfir á nýtt fiskveiðiár.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. september 2026.

9. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. september 2026 nema 8. gr. sem öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Allar aflahlutdeildir í grásleppu sem skráðar eru á skip falla niður við gildistöku laga þessara.

Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Hanna Katrín Friðriksson.

A deild — Útgáfudagur: 20. mars 2026

Tengd mál