Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
30. júní 2025
Útgáfudagur
14. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 793/2025
30. júní 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna frístundabyggðar á Böðmóðsstöðum, Bjarkarhöfða.
Skipulagsstofnun staðfesti 30. júní 2025 breytingu á aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. febrúar 2025.
Í breytingunni felst að 5,35 ha frístundalóð, innan frístundabyggðar F42 í landi Böðmóðsstaða, er breytt í landbúnaðarland með heimildum fyrir fasta búsetu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 30. júní 2025.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 14. júlí 2025