Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið (2022-2025)

Málaflokkur

Félagsmál, Almannatryggingar

Undirritunardagur

21. desember 2022

Útgáfudagur

27. desember 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1480/2022

21. desember 2022

REGLUGERÐ

um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

1. gr.

Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði skv. 32. gr. laga um atvinnuleysistryggingar miðast við tryggingahlutfall hins tryggða þannig að þær nemi aldrei hærri fjárhæð en 522.282 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu, sbr. 15. eða 19. gr. laganna. Við útreikning á atvinnuleysisbótum fyrir hvern dag skal miða við 21,67 daga í mánuði.

2. gr.

Sá sem telst að fullu tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á rétt til óskertra grunnatvinnuleysisbóta sem skulu nema 331.298 kr. á mánuði. Lágmarksréttur til atvinnuleysistrygginga veitir rétt til ¼ hluta grunnatvinnuleysisbóta.

3. gr.

Frítekjumark skv. 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal vera 81.547 kr. á mánuði.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, gildir um fjárhæð atvinnuleysistrygginga sem reiknast fyrir tímabilið frá og með 1. janúar 2023 og síðar og öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1657/2021, um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2022.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2022

Tengd mál