Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
14. desember 2022
Útgáfudagur
29. desember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1540/2022
14. desember 2022
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2023.
Eignamat í árslok.
Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2022, álagningarárið 2023, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:
| kr. | |||
| Mjólkurkýr | 140.000 | ||
| Holdakýr og naut | 142.000 | ||
| Kvígur, 1½ árs og eldri | 130.000 | ||
| Geldneyti | 77.000 | ||
| Kálfar, yngri en ½ árs | 14.000 | ||
| Ær og sauðir | 7.800 | ||
| Hrútar | 18.000 | ||
| Gemlingar | 11.500 | ||
| Geitur | 12.000 | ||
| Hross á 14. vetri og eldri | 22.000 | ||
| Hross á 5. – 13. vetri | 50.000 | ||
| Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri | 220.000 | ||
| Önnur nýtanleg reiðhross | 125.000 | ||
| Verðlaunahross á 5. – 13. vetri | 350.000 | ||
| Kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 470.000 | ||
| Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 600.000 | ||
| Tryppi á 2. – 4. vetri | 16.000 | ||
| Folöld | 11.500 | ||
| Hænsni, eldri en 6 mánaða | 1.080 | ||
| Varphænsni 6 mánaða og yngri | 735 | ||
| Kjúklingar | 300 | ||
| Endur | 1.055 | ||
| Gæsir | 2.115 | ||
| Kalkúnar | 3.165 | ||
| Gyltur | 48.000 | ||
| Geltir | 70.000 | ||
| Grísir | 13.500 | ||
| Kanínur | 5.000 | ||
| Minkar: | Karldýr | 5.400 | |
| Kvendýr | 3.600 | ||
| Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | 0 | ||
Reykjavík, 14. desember 2022.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022