Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

24. júní 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 780/2026

24. júní 2026

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar, nr. 252/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 62. gr. samþykktarinnar:

  1. 1. málsl. 4. mgr. B-liðar I. kafla, um skipulags- og framkvæmdanefnd, breytist og orðast svo: Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í skipulags- og framkvæmdanefnd.
  2. 1. málsl. 5. mgr. B-liðar I. kafla, um stjórn menningarstofu, breytist og orðast svo: Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í stjórn menningarstofu.
  3. Við II. kafla bætist ný málsgrein, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn: Stjórn Sköpunarmiðstöðvar. Bæjarstjórn skipar einn fulltrúa, og annan til vara, í stjórn Sköpunarmiðstöðvar að fenginni tilnefningu stjórnar menningarstofu.
  4. 4. og 6. mgr. II. kafla, um stjórn Skólaskrifstofu Austurlands og stjórn Sjóminjasafns Austurlands, falla brott.
  5. 3. mgr. II. kafla breytist og orðast svo, ásamt fyrirsögn: Stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Bæjarstjórn skipar þrjá fulltrúa, og jafnmarga til vara, í stjórn Tónlistarmiðstöðvar Austurlands að fenginni tilnefningu stjórnar menningarstofu.

2. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 24. júní 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál