Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Borgarbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Borgarbyggð

Undirritunardagur

30. apríl 2026

Útgáfudagur

18. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 492/2026

30. apríl 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Borgarbyggð.

Stuttárbotnar – Stórarjóður 6, óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi Stuttárbotna í landi Húsafells III á fundi sínum 16. apríl 2026. Deiliskipulagsbreytingin tekur til lóðarinnar Stórarjóður 6 þar sem byggingarreitur er lengdur um nokkra metra til norðausturs og suðausturs auk þess sem hann er einnig settur utan um núverandi fylgihús sem er á lóðinni en húsið stendur nær lóðamörkum en 10 m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Borgarbyggð, 30. apríl 2026.

F.h. skipulagsfulltrúa,

Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild — Útgáfudagur: 18. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi