Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

11. nóvember 2024

Útgáfudagur

25. nóvember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1313/2024

11. nóvember 2024

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 155/2011 um val nemenda til náms í tannlæknisfræði og tannsmíði við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. reglnanna:

  1. 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Val nemenda fer fram í tveimur skrefum: inntökupróf er haldið í júní ár hvert í samráði við læknadeild þar sem tiltekinn fjöldi, ákveðinn skv. 1 mgr., öðlast rétt til náms á næsta haustmisseri.
  2. Orðin „í tannlæknisfræði“ í 3. málsl. 2. mgr. falla brott.
  3. 4. málsl. 2. mgr. fellur brott.

2. gr.

Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. reglnanna:

  1. Fyrirsögn greinarinnar skal vera: Inntökupróf.
  2. Orðin „í tannlæknisfræði“ í 1. málsl. 1. mgr. falla brott.
  3. Orðin „í tannlæknisfræði“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar með heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 11. nóvember 2024.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2024

Tengd mál