Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

19. janúar 2012

Útgáfudagur

3. febrúar 2012

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 102/2012

19. janúar 2012

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi, Ísafjarðarhöfn, Ísafirði, Ísafjarðarbæ.

Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 15. desember 2011 var samþykkt breyting á deiliskipulagi Ísafjarðarhafnar, Ísafirði.
Deiliskipulagið felur í sér að ný lóð, Ásgeirsgata 1a, bætist við suðvestan við Ásgeirsgötu 3, sem einnig fær skilgreinda lóð. Lóðin er ætluð fyrir gistiheimili og skylda starfsemi, allt að 1097,25 m² að stærð.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

Ísafirði, 19. janúar 2012.

Jóhann B. Helgason,
sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs.

B deild - Útgáfud.: 3. febrúar 2012

Tengd mál