Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hveragerðisbær
Málaflokkur
Hundar, Hveragerði
Undirritunardagur
8. febrúar 2007
Útgáfudagur
24. maí 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 458/2007
8. febrúar 2007
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Hveragerði.
1. gr.
Þeir sem fá heimild til að halda hund, sbr. 2. gr. samþykktar um hundahald í Hveragerði dags. 8. febrúar 2007 skulu á árinu 2007 greiða sem hér segir:
Skráningargjald kr. 12.500.
Árgjald fyrir hundaleyfi kr.12.000.
Árgjaldið greiðist fyrirfram fyrir allt tímabilið með gjalddaga 15. febrúar og eindaga 15. mars. Dráttavextir reiknast frá gjalddaga verði gjaldið eigi greitt í síðasta lagi á eindaga. Veittur er 25% afsláttur ef eigandi hunds hefur farið á námskeið í hundahaldi. Eins er veittur 25% afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega.
2. gr.
Kostnaður vegna handsömunar hunda sem teknir eru lausir skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausa hunda að ræða. Sá kostnaður greiðist með handsömunargjaldi sem er eftirfarandi:
| Í fyrsta sinn | kr. | 9.000 |
| Í annað sinn | kr. | 13.000 |
| Í þriðja sinn | kr. | 17.000 |
Auk þess skal leyfishafi/umráðamaður hunds greiða geymslugjald vegna geymslu handsamaðs hunds.
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar 8. febrúar 2007 með tilvísun til heimildar í samþykkt um hundahald í Hveragerði staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og tekur nú þegar gildi.
Samþykkt af Heilbrigðiseftirliti Suðurlands 6. mars 2007.
Hveragerði, 8. febrúar 2007.
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 24. maí 2007