Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Landbúnaður, Dýravernd

Undirritunardagur

28. desember 2023

Útgáfudagur

22. janúar 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1718/2023

28. desember 2023

AUGLÝSING

um afléttingu tímabundinna varnaraðgerða til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

1. gr.

Með vísan til þess að smithætta á fuglaflensu fyrir alifugla og aðra fugla í haldi er metin miðlungs hefur ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, ákveðið að fella úr gildi auglýsingu nr. 380/2022 um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með vísan til 8. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 og öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 28. desember 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.

B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2024

Tengd mál