Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaeftirlitið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

2. júní 2017

Útgáfudagur

7. júní 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 509/2017

2. júní 2017

REGLUR

um tæknilega staðla vegna stórra áhættuskuldbindinga.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna stórar áhættuskuldbindingar í samræmi við ákvæði reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017.

2. gr. Ákvörðun heildarfjárhæðar stórra áhættuskuldbindinga.

Við ákvörðun á heildarfjárhæð áhættuskuldbindinga viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskiptamanna skal fjármálafyrirtæki fara eftir ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 frá 2. október 2014, sbr. 3. gr. þessara reglna.

3. gr. Birting tæknilegra staðla.

Með vísan til 2. gr. öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 frá 2. október 2014 um tæknilega eftirlitsstaðla varðandi ákvörðun á heildarfjárhæð stórra áhættuskuldbindinga vegna undirliggjandi eigna viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskiptamanna, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 57/2015 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1464963032041&uri=CELEX:32014R1187, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 324, þann 7. nóvember 2014, bls. 1-5.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með heimild í d-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 2. júní 2017.

Anna Mjöll Karlsdóttir.

Sigurður Freyr Jónatansson.

B deild - Útgáfud.: 7. júní 2017

Tengd mál