Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Alþingi
Undirritunardagur
23. desember 2025
Útgáfudagur
29. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 108/2025
23. desember 2025
AUGLÝSING
um frestun á fundum Alþingis.
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis:
„Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frá 18. desember 2025 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 14. janúar 2026.
Gjört í Reykjavík, 18. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.“
Alþingi samþykkti hinn 18. desember 2025 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skírskotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frestað hinn 18. desember 2025.
Forsætisráðuneytinu, 23. desember 2025.
F. h. r.
Benedikt Árnason.
Páll Þórhallsson.
A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025