Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Velferðarráðuneytið

Málaflokkur

Launamál, Staðlar, Jafnréttismál

Undirritunardagur

9. nóvember 2018

Útgáfudagur

14. nóvember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 997/2018

9. nóvember 2018

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1030/2017, um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85.

1. gr.

Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein er verður 8. gr. ásamt fyrirsögn svohljóðandi og núverandi 8. gr. verður 9. gr.:

Tímamörk varðandi innleiðingu.

Fyrirtæki og stofnanir þar sem 250 eða fleiri starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2019. Þá skulu fyrirtæki og stofnanir þar sem 150–249 starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2020. Fyrirtæki og stofnanir þar sem 90–149 starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. eða staðfestingu skv. 5. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2021. Fyrirtæki og stofnanir þar sem 25–89 starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. eða staðfestingu skv. 5. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2022.

Þrátt fyrir ákvæði þetta skulu opinberar stofnanir, sjóðir og fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu ríkisins og þar sem 25 eða fleiri starfsmenn starfa að jafnaði á ársgrundvelli hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. eða staðfestingu skv. 5. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2019. Þrátt fyrir ákvæði þetta skal Stjórnarráð Íslands hafa öðlast vottun skv. 4. mgr. 19. gr. eða staðfestingu skv. 5. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess eigi síðar en 31. desember 2018.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI í lögum nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 9. nóvember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Ellý Alda Þorsteinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2018

Tengd mál