Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Reykjavík, Byggingarmál, Mannvirki
Undirritunardagur
20. desember 2018
Útgáfudagur
21. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1233/2018
20. desember 2018
GJALDSKRÁ
fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar.
Fyrir þjónustu, sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr. Úttektir samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
| Áfangaúttekt | 11.200 kr. | |
| Stöðuúttekt | 19.600 kr. | |
| Lokaúttekt, umfangslítil | 22.400 kr. | |
| Lokaúttekt, umfangsmikil | 39.200 kr. | |
| Úrtaksskoðun vegna áfangaúttekta | 11.200 kr. | |
| Úttekt byggingarstjóraskipta | 22.400 kr. | |
| Íbúðarskoðun | 22.400 kr. |
2. gr. Útgáfa vottorða.
| Fokheldisvottorð | 28.100 kr. | |
| Vottorð um stöðuúttekt | 19.900 kr. | |
| Lokaúttektarvottorð | 19.900 kr. | |
| Stöðuleyfi | 18.000 kr. |
3. gr. Byggingarleyfisgjöld.
| Lágmarksgjald við móttöku umsóknar | 11.200 kr. | |
| Fyrir hvern rúmmetra í nýbyggingu eða stækkun | 112 kr. | |
| Endurnýjun byggingarleyfa | 11.200 kr. | |
| Aukagjald fyrir hverja þriðju umfjöllun | 11.200 kr. |
4. gr. Yfirferð og samþykkt séruppdrátta
| Einbýlis-, par- og raðhús og fjölbýlishús með allt að 6 íbúðum | 84.000 kr. | |
| Fjölbýlishús með 7-20 íbúðum | 162.400 kr. | |
| Fjölbýlishús með fleiri en 20 íbúðum | 268.800 kr. | |
| Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ | 117.600 kr. | |
| Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús 2.000 – 10.000 m³ | 134.400 kr. | |
| Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús stærri en 10.000 m³ | 190.400 kr. | |
| Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. | 28.000 kr. | |
| Umfangslitlar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis | 44.800 kr. | |
| Umfangsmiklar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis | 89.600 kr. | |
| Breytingar á innra skipulagi sérhúss, klæðning húss, svalaskýli, lóð o.fl. | 16.800 kr. |
5. gr. Skoðunargjöld vegna yfirlesturs eignaskipayfirlýsingar.
| Eignaskiptayfirlýsing, umfangslítil | 33.600 kr. | |
| Eignaskiptayfirlýsing, umfangsmikil | 56.000 kr. | |
| Aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur | 11.200 kr. |
6. gr. Skoðunargjöld vegna yfirferðar raflagnauppdrátta.
| Íbúðarhúsnæði: | ||
| Einbýlis-, par- og raðhús 1 x 63 A | 15.1000 kr. | |
| Fjölbýlishús með allt að 10 íbúðum: | ||
| Heimtaug 3 x 63 A, grunngjald | 15.1000 kr. | |
| Á hverja íbúð | 780 kr. | |
| Stærri fjölbýlishús: | ||
| Heimtaug 3 x 100-200 A, grunngjald | 15.100 kr. | |
| Á hverja íbúð | 1.900 kr. | |
| Atvinnuhúsnæði: | ||
| Heimtaug 3 x 63 A | 22.400 kr. | |
| Heimtaug 3 x 100-200 A | 60.100 kr. | |
| Heimtaug 3 x 315 A og stærri | 100.100 kr. |
7. gr.
Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í 51. gr. laga um mannvirki. 160/2010 með síðari breytingum var staðfest í borgarstjórn Reykjavíkur 6. nóvember 2018 öðlast gildi 1. janúar 2019.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 20. desember 2018.
Dagur B. Eggertsson.
B deild - Útgáfud.: 21. desember 2018