Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
14. september 2022
Útgáfudagur
29. september 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1094/2022
14. september 2022
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:
1.28 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/579 frá 8. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.28. | |
1.29 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/881 frá 3. júní 2022 um framkvæmd á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.29. | |
1.30 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/882 frá 3. júní 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.30. | |
1.31 | Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1243 frá 18. júlí 2022 um framkvæmd á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.31. | |
2.35 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/577 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.35. | |
2.36 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/876 frá 3. júní 2022 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.36. | |
2.37 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/877 frá 3. júní 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.37. | |
2.38 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1231 frá 18. júlí 2022 um framkvæmd á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.38. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 14. september 2022.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Anna Jóhannsdóttir.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 29. september 2022