Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

11. mars 2022

Útgáfudagur

11. mars 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 306/2022

11. mars 2022

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.11 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/376 frá 3. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/375 frá 3. mars 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.12.
3.41 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/265 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.41.
3.43 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/329 frá 25. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.43.
3.44 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/331 frá 25. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.44.
3.45 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/337 frá 28. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.45.
3.46 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/354 frá 2. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.46.
3.47 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/397 frá 9. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.47.
4.48 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/330 frá 25. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.48.
4.49 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2022/332 frá 25. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.49.
4.50 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2022/336 frá 28. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.50.
4.51 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2022/353 frá 2. mars 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.51.
4.52 Framkvæmdareglugerð ráðsins (ESB) 2022/396 frá 9. mars 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.52.
7.14 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/327 frá 25. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.14.
7.15 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/335 frá 28. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.15.
7.16 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/346 frá 1. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.16.
7.17 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/351 frá 1. mars 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.17.
8.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/328 frá 25. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.6.
8.7 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/334 frá 28. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.7.
8.8 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/345 frá 1. mars 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.8.
8.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/350 frá 1. mars 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.9.
10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/263 frá 23. febrúar 2022 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð, sbr. fylgiskjal 10.

2. gr. Yfirflugsbann.

Með ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/335, sbr. 1. gr. tölul. 7.15 þessarar reglugerðar, og reglugerð ráðsins (ESB) 2022/334, sbr. 1. gr. tölul. 8.7 þessarar reglugerðar, er kveðið á um yfirflugsbann yfir yfirráðasvæði ESB sem tekur með þessari reglugerð til lofthelgi Íslands. Samhliða er 2. gr. reglugerðar nr. 248/2022 frá 28. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014 með síðari breytingum felld brott.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. mars 2022.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 11. mars 2022

Tengd mál