Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Árborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
4. febrúar 2026
Útgáfudagur
18. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 159/2026
4. febrúar 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Árborg.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og samkvæmt viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018, sbr. breytingu á samþykktinni nr. 64/2025, sem kveða á um valdheimildir skipulagsfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu, eru eftirfarandi óverulegar breytingar á gildandi deiliskipulagi samþykktar.
Fossnes og Mýrarland – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti 28. janúar 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til lóða Breiðumýrar 8 og 10 á Selfossi. Í breytingunni felst að byggingarreitur lóðar er færður í 12 m fjarlægð frá lóðarmörkum til vesturs í stað 20 m.
Austurbyggð II, Ásland 9-11 – óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Í breytingunni felst að byggingarreitur að Áslandi 9-11 stækkar um 0,9 m til suðausturs. Hámarksnýtingarhlutfall breytist ekki.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Selfossi, 4. febrúar 2026.
F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,
Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 18. febrúar 2026