Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

1. júní 2026

Útgáfudagur

16. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 684/2026

1. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna Búðareyrar 12.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 1. júní 2026 breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. mars 2026.

Í breytingunni felst að verslunar- og þjónustusvæði VÞ300 á Búðareyri 12 á Reyðarfirði verður hluti af íbúðarbyggð ÍB300. Íbúðarbyggðin stækkar um 1 ha en ákvæði haldast óbreytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 1. júní 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 16. júní 2026

Tengd mál